Pítsan sem slær í gegn í næsta barnaafmæli

Þessar pizzustangir munu fara á vinsældarlistann hjá öllum í fjölskyldunni.
Þessar pizzustangir munu fara á vinsældarlistann hjá öllum í fjölskyldunni. mbl.is/Therecipecritic.com

Snilld­in ein sem þessi upp­skrift er! Pizza á priki er full­kom­in í næsta barna­af­mæli eða sem snarl yfir sjón­varps­glápi sem all­ir í fjöl­skyld­unni munu elska. Hér er upp­lagt að prófa sig áfram með önn­ur hrá­efni eins og skinku, papriku, zucchini og bragðmikla osta.

Pítsan sem slær í gegn í næsta barnaafmæli

Vista Prenta

Pizza á priki

  • Pizza­deig
  • Pepp­eróní
  • ¼ ósaltað smjör
  • ¾ tsk. hvít­laukssalt
  • 1 msk. fersk basilika, smátt söxuð
  • 1 bolli rif­inn ost­ur
  • ¼ bolli par­mes­an-ost­ur
  • 1 bolli pizza sósa
  • Trép­inn­ar

Aðferð:

  1. Bleytið trép­inn­ana í vatni í sirka 30 mín­út­ur eða notið stálp­inna.
  2. Hitið ofn­inn í 200° og setjið álp­app­ír á bök­un­ar­plötu og spreyið með bök­un­ar­spreyi.
  3. Fletjið pizza­deigið út. Blandið sam­an bræddu smjöri, hvít­laukssalti, par­mes­an og basiliku og penslið pizza­deigið með blönd­unni.
  4. Skerið deigið í 2,5 cm þykk­ar ræm­ur.
  5. Setjið pepp­eróní á ræm­urn­ar með góðu milli­bili og byrjið að vefja upp á pinn­ana þannig að pepp­erón­íið sting­ist út á milli.
  6. Setjið pinn­ana á bök­un­ar­plöt­una og smyrjið aft­ur með hvít­lauks­blönd­unni. Bakið í 10-12 mín­út­ur þar til deigið er orðið gyllt að lit.
  7. Takið úr ofn­in­um og dreifið rifn­um osti yfir og leyfið hon­um að bráðna. Látið aft­ur inn í ofn í nokkr­ar mín­út­ur ef þörf er á að ost­ur­inn bráðni meira. Berið fram með pizzasósu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert