Óhóflega girnileg útgáfa af föstudagspítsunni

Mögulega næsta útfærsla af föstudagspizzu.
Mögulega næsta útfærsla af föstudagspizzu. mbl.is/Stine Christiansen

Erum við mögu­lega að sjá nýj­ung sem gæti leyst föstu­dagspizzu af hólmi? Það má í það minnsta prófa þessa girni­legu smjör­deigs­böku með osti og mar­in­eruðu græn­meti, því girni­leg er hún. Hér er til­valið að nota paprik­ur í öll­um lit­um til að fá fal­lega litap­all­ettu á bök­una sem gleður augað.

Óhóflega girnileg útgáfa af föstudagspítsunni

Vista Prenta

Ostaunaður með mar­in­eruðu græn­meti

Tertu­deig:

  • Smjör­deig
  • 250 g ricotta
  • 100 g mjúk­ur geita­ost­ur
  • 1 egg
  • Rif­inn sítr­ónu­börk­ur af ½ sítr­ónu

Fyll­ing:

  • 2 paprik­ur
  • 2-3 vor­lauk­ar
  • 1 kúr­bít­ur
  • 2 msk. sítr­ónusafi
  • ½ dl ólífu­olía
  • Rif­inn par­mes­an
  • Kryd­d­jurtir að eig­in vali

Aðferð:

  1. Rúllið smjör­deig­inu út á bök­un­ar­papp­ír á bök­un­ar­plötu.
  2. Hrærið ricotta, geita­osti, eggi og sítr­ónu­berki sam­an og smyrjið á deigið, sirka 2 cm frá kanti.
  3. Bakið deigið í 16 mín­út­ur við 210°.
  4. Skerið paprik­una í þunna strimla og rífið vor­lauk­inn í strimla. Skrælið kúr­bít­inn niður í langa strimla. Veltið græn­met­inu upp úr ólífu­olíu og sítr­ónusafa og látið standa í 10 mín­út­ur.
  5. Dreifið græn­met­inu yfir botn­inn og stráið timí­an og par­mes­an yfir.
  6. Bakið í 6 mín­út­ur þar til ost­ur­inn hef­ur bráðnað.
  7. Dreifið kryd­d­jurt­um yfir eft­ir smekk og berið fram strax.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert