Hið eina sanna Rocky Road

Rocky Road er eitt vinsælasta konfekt allra tíma.
Rocky Road er eitt vinsælasta konfekt allra tíma. mbl.is/Julie Polar de Greeve_mainlifestyle.dk

Marg­ir þekkja „Rocky Road“ sem er alda­göm­ul upp­skrift að góm­sætu kon­fekti með sögu. Þessi upp­skrift er til­valið sunnu­dags­fönd­ur ef svo má segja, og full­komið með kaff­inu.

Rocky Road á sér langa sögu og talið er að upp­skrift­in komi upp­runa­lega frá Ástr­al­íu þó að það sé ekki staðfest – en eitt er víst að þetta bragðgóða kon­fekt varð vin­sælt í kring­um 1900. Í Ástr­al­íu setja menn rauð kokteil­ber í blönd­una og í Banda­ríkj­un­um setja menn kex. Eng­lend­ing­ar fara aðra leið með syk­ur­púðum og hnet­um sem við ætl­um að kynna hér.

Hið eina sanna Rocky Road

Vista Prenta

Hið eina sanna Rocky Road

  • 100 g maca­da­mia-hnet­ur
  • 50 g pist­asíu­hnet­ur
  • 100 g þurrkaðar apríkós­ur
  • 75 g litl­ir syk­ur­púðar
  • 400 g hvítt súkkulaði

Aðferð:

  1. Leggið pök­un­ar­papp­ír í form (20x30 cm) og passið að papp­ír­inn nái upp fyr­ir kant­inn.
  2. Hakkið hnet­ur og apríkós­ur í minni bita. Blandið syk­ur­púðum, hnet­um og apríkós­um í skál en takið smá­veg­is af hökkuðum apríkós­um og hnet­um frá til að skreyta á eft­ir.
  3. Bræðið hvíta súkkulaðið yfir vatnsbaði. Hellið súkkulaðinu yfir hnetu­blönd­una og blandið vel sam­an.
  4. Hellið í form og pressið létti­lega niður með sleif og skreytið.
  5. Kælið í tvo tíma eða þar til súkkulaðið hef­ur harðnað.
  6. Skerið með heit­um hnífi eða brjótið í hæfi­lega stóra bita.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert