Vanilluskyrkökur með karamellubráð

mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir

Þegar kem­ur að huggu­leg­um veit­ing­um á veislu­borðið er eng­inn flinkari en Berg­lind Hreiðars á Gotte­ríi & ger­semum enda má kalla hana ókrýnd­an Íslands­meist­ara í veislu­haldi.

Þess­ar skyr­kök­ur eru í miklu upp­á­haldi hjá henni enda skyldi eng­an undra. Þær eru fá­rán­lega bragðgóðar og koma virki­lega vel út í krukk­un­um.

mbl.is/​Berg­lind Hreiðars­dótt­ir

Vanilluskyrkökur með karamellubráð

Vista Prenta

Vanillu­skyr­kök­ur með kara­mellu­bráð upp­skrift

Upp­skrift­in dug­ar í 18 litl­ar krukk­ur eða færri stærri ílát

Botn

  • 1 pk. Lu Bastog­ne Duo-kex mulið

  • 20 gr. brætt smjör

Skyrkaka

  • Ísey skyr með vanillu­bragði (stór dós)

  • 500 ml rjómi

  • 200 gr. hvítt súkkulaði

  • Fræ úr einni vanillu­stöng

Kara­mellu­bráð

  • 20 stk. stór­ar og mjúk­ar rjómak­ara­mell­ur (t.d frá Kara­mel Kompagniet)

  • 5 msk. rjómi

  • Kara­melluk­url

Aðferð

  1. Blandið sam­an kexi og smjöri og setjið góða te­skeið í botn­inn á hverri krukku (meira ef notuð eru stærri ílát).
  2. Bræðið súkkulaðið og leyfið því að kólna aðeins.
  3. Þeytið rjóma og leggið til hliðar.
  4. Þeytið skyrið og skafið úr vanillu­stöng­inni út í og blandið vel.
  5. Blandið því næst bræddu súkkulaðinu sam­an við og að lok­um rjóm­an­um með sleikju þar til vel blandað. Skiptið á mill ílát­anna.
  6. Bræðið kara­mell­ur og rjóma sam­an við meðal­há­an hita þar til kara­mell­urn­ar eru upp­leyst­ar. Leyfið að kólna ör­lítið en hellið þó yfir skyr­kök­urn­ar áður en bland­an verður of þykk.
  7. Skreytið með kara­melluk­urli.
mbl.is/​Berg­lind Hreiðars­dótt­ir
mbl.is/​Berg­lind Hreiðars­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert