Bestu snúðar sem þú munt smakka

Ómótstæðilegir snúðar!
Ómótstæðilegir snúðar! mbl.is/TheFoodClub

Nýbakaðir brauðsnúðar með nóg af smjöri og kanil voru að koma úr ofn­in­um. Það verður að segj­ast að við sýn­um veik­leika­merki þegar slík­ar kræs­ing­ar lenda á borðinu og ekki lengi að grípa einn til að smakka. Hér er upp­skrift að fléttuðum súr­deigs­snúðum – en ef þú átt ekki súr­deig er ekk­ert mál að sleppa því, bara ekki sleppa því að baka.

Bestu snúðar sem þú munt smakka

Vista Prenta

Fléttaðir súr­deigs­snúðar (ca. 12 stk.)

Deig:

  • 20 g ger
  • 3 msk. súr­deig
  • 3 dl mjólk
  • 1 egg
  • 75 g syk­ur
  • Salt á hnífsoddi
  • 10 g kar­dimomm­ur
  • 650-700 g hveiti
  • 100 g smjör

Krem­fyll­ing:

  • 125 g mjúkt smjör
  • 3-4 tsk. kanill
  • 125 g syk­ur

Aðferð:

  1. Setjið ger í hræri­véla­skál ásamt súr­deigi og mjólk og hrærið gerið út. Bætið við eggi, sykri, salti og kar­dimommu og hrærið aft­ur í.
  2. Bætið hveiti í smátt og smátt og passið að deigið verði ekki of þurrt. Hnoðið í um 5 mín­út­ur og setjið þá litla smjör­bita út í. Hrærið áfram í 3-4 mín­út­ur. Deigið á að vera laust frá skál­inni og vera létt í sér. Látið hef­ast á heit­um stað í 1-2 tíma.
  3. Hrærið á meðan í krem­fyll­ing­una  smjör, kanil og syk­ur sam­an.
  4. Þegar deigið hef­ur tekið sig, sáldrið þá hveiti á borðið og rúllið deig­inu út í fern­ing 30x45 cm.
  5. Smyrjið krem­inu jafnt á deigið. Brjótið einn þriðja af deig­inu inn að miðju og hina hliðina inn á fyrsta hlut­ann – þannig að deigið verði í þreföldu lagi. Rúllið þá deig­inu laus­lega út aft­ur. Skerið í 12 strimla (30 cm lang­ar og 2,5 cm breiðar). Snúið upp á striml­ana og gerið nett­an hnút.
  6. Leggið á bök­un­ar­plötu með bök­un­ar­papp­ír og penslið með pískuðu eggi.
  7. Bakið við 200° í 12 mín­út­ur.
mbl.is/​TheFoodClub
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert