Christina Aguilera hrekkti kleinuhringjakaupendur

Christina Aguilera kom fólki á óvænt nú á dögunum í …
Christina Aguilera kom fólki á óvænt nú á dögunum í lítilli kleinuhringjaverslun í LA. mbl.is/youtube.com

Söngdív­an fagra, Christ­ina Aguilera, mætti í litla kleinu­hringja­versl­un í Los Ang­eles þar sem viðskipta­vin­ir vissu ekki hverju þeir áttu von á.

Popp-drottn­ing­in var á staðnum með þátta­stjórn­and­an­um Jimmy Kimmel í ákveðnu verk­efni sem kom gest­um og gang­andi held­ur bet­ur á óvart. Í sak­leysi sínu var fólk að kaupa sér kleinu­hringi er það heyr­ir lag óma í kall­kerfi versl­un­ar­inn­ar – og ekk­ert venju­legt lag, því rödd­in og lagið var kunn­ug­legt en text­inn var um viðskipta­vin­ina per­sónu­lega. Það er varla hægt að lýsa þessu bet­ur en að horfa á þetta stór­skemmti­lega mynd­band.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert