Nýtt Skittles á markað

Chewies er splunkunýtt frá Skittles!
Chewies er splunkunýtt frá Skittles! mbl.is/Skittles

Regn­boga­lituðu perlurn­ar, sem hafa gætt bragðlauk­anna síðan 1970, eru komn­ar úr skel­inni. Nú er Skitt­les fá­an­legt án þess að tyggja hörðu skel­ina sem um­lyk­ur mjúku ávaxta­belg­ina und­ir nafn­inu „Skitt­les Chewies“.

Stjórn­end­ur Skitt­les gerðu ít­ar­lega rann­sókn á því hvað neyt­end­ur þeirra vilja og út­kom­an varð þessi. Mjúk­ir ávaxta­belg­ir, án þess að bíta í eitt­hvað hart, og ákveðnir bragðflokk­ar voru líka nefnd­ir. Bragðteg­und­irn­ar í Skitt­les Chewies eru svipaðar og við þekkj­um til fyr­ir utan að grænu epla-perl­un­um er skipt út fyr­ir aðrar græn­ar með lime-bragði. Þar fyr­ir utan eru app­el­sínu-, sítr­ónu-, jarðarberja- og sól­berja­bragð.

mbl.is/​Skitt­les
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert