Kjúklingarétturinn sem þú þarfnast

Svona réttur þarf að vera í það minnsta einu sinni …
Svona réttur þarf að vera í það minnsta einu sinni í viku. mbl.is/Erika Lapresto

Við þurf­um á ein­um svona rétti að halda í hverri viku. Upp­skrift sem tek­ur ekki all­an dag­inn að græja og er ein­stak­lega bragðgóð. Kjúk­linga­læri með hrís­grjón­um og heima­gerðu pestói búið til úr brok­kolí, en slíka út­færslu af pestói sjá­um við ekki oft á diskn­um okk­ar.

Kjúklingarétturinn sem þú þarfnast

Vista Prenta

Ein­fald­ur kjúk­linga­rétt­ur með pestó

  • 1 bolli hrís­grjón
  • 2 brok­kolí­haus­ar
  • 1 bolli fersk basilika
  • ½ bolli ólífu­olía
  • ¼ bolli nýrif­inn par­mes­an
  • ¼ bolli möndl­ur
  • 1 hvít­lauksrif
  • 1 tsk. kos­her-salt eða álíka
  • 8 kjúk­linga­læri
  • Salt og pip­ar

Aðferð:

  1. Sjóðið hrís­grjón sam­kvæmt leiðbein­ing­um og út­búið pestó á meðan.
  2. Pestó: Takið helm­ing­inn af brok­kolí­inu frá og setjið í mat­vinnslu­vél ásamt basiliku og ólífu­olíu. Bætið síðan par­mes­an, möndl­um, hvít­lauk og kos­her-salti við. Blandið vel sam­an.
  3. Takið fram stóra pönnu og hitið á meðal­hita með smá­veg­is af olíu. Kryddið kjúk­ling­inn með salti og pip­ar og setjið á pönn­una. Steikið þar til til­bú­inn um 10-12 mín­út­ur á hvorri hlið og leggið til hliðar á disk.
  4. Setjið soðnu hrís­grjón­in út á pönn­una og veltið þeim upp úr kjúk­linga­saf­an­um. Leggið kjúk­ling­inn aft­ur á pönn­una ásamt rest­inni af brok­kolí­inu.
  5. Dreifið brok­kolí og pestó yfir og berið fram.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert