Ketó pítsubotn sem sagður er „sjúllaður“

Ég ber ná­kvæm­lega enga ábyrgð á þess­ari orðnot­kon­un, hún kem­ur beint frá sam­starfs­konu minni hér á Árvakri sem bað mig vin­sam­leg­ast um að deila þess­ari upp­skrift af ketó pítsu­botni sem hún sagði að - og nú lýg ég engu - væri al­gjör­lega sjúllaður.


Við reikn­um með að það sé já­kvætt og gefi til kynna að bragðgæði botns­ins hafi verið of­vax­inn skiln­ing­in okk­ar.


Upp­skrift­in kall­ast á ensku Fat Head Dough - er am­er­ísk og því er not­ast við bolla­mál. Ég er treg til að breyta því yfir nema um vökva sé að ræða og því stend­ur þetta óbreytt.

Ketó pítsubotn sem sagður er „sjúllaður“

Vista Prenta
Ketó pítsu­botn sem sagður er „sjúllaður“
  • 1½ bolli rif­inn mozzar­ella cheese
  • ¾ bolli möndlu hveiti
  • 2 msk rjóma­ost­ur
  • 1 tsk edik
  • 1 egg
  • ½ tsk salt
  • ólífu­olía til að smyrja hend­urn­ar á þér
Botn
  1. Hitið ofn­inn í 200 gráður.
  2. Hitið mozzar­ella og rjóma­ost­inn í potti eða ör­bylgju­ofni.
  3. Hrærið sam­an uns þeir hafa bland­ast sam­an. Bætið þá við hinum hrá­efn­unu og blandið vel sam­an.
  4. Settu vel af ólífu­olíu á hend­urn­ar þínar og flettu deigið út á smjörpapp­ír. Úr þessu ætti að verða pítsa sem er um 20 sm í þver­mál. Einnig er hægt að nota köku­kefli til að fletja deigið út en þá er betra að setja líka smjörpapp­ír ofan á degið meðan það er flatt út.
  5. Stingið í botn­inn með gaffli og bakið í ofn­in­um í 10-12 mín­út­ur.
  6. Þegar botn­inn er til­bú­inn skal taka hann út, setja álegg og sósu ofan á hann og baka síðan aft­ur í 10-12 mín­út­ur eða þar til ost­ur­inn er bráðnaður.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert