Yfirliðsvaldandi kirsuberja- og súkkulaðipavlóur

mbl.is/Linda Ben

Er eitt­hvað betra, full­komn­ara, bragðbetra eða lekk­er­ara en smá-pavlóv­ur löðrandi í dá­semd­ar­sæt­ind­um sem lyfta geðinu á æðra plan? 

Yfirliðsvaldandi kirsuberja- og súkkulaðipavlóur

Vista Prenta

Kirsu­berja- og súkkulaðipa­vló­ur

  • 6 eggja­hvít­ur
  • 3,5 dl syk­ur
  • 2 tsk korn­sterkja
  • 2 tsk vanillu­drop­ar
  • 2 tsk hvítt borðedik
  • 500 ml rjómi frá Örnu
  • 8-10 msk kirsu­berjasósa (ein msk á hverja pavlóvu)
  • 150 g súkkulaði
  • u.þ.b. 30 stk kirsu­ber

Aðferð:

  1. Stillið ofn­inn á 120°C.
  2. Notið hrær­vél­ar­skál, setjið eggja­hvít­ur í skál­ina og þeytið (mik­il­vægt að skál­in sé tand­ur­hrein).
  3. Blandið korn­sterkj­unni út í syk­ur­inn, hrærið sam­an.
  4. Þeytið eggja­hvít­urn­ar mjög ró­lega fyrst, setjið 1 tsk af sykri út í þær í einu á ca 1/​2 mín. fresti, aukið hraðann hægt og ró­lega eft­ir því sem þið setjið meiri syk­ur út í (.etta er þol­in­mæðis­verk en vel þess virði).
  5. Blandið sam­an vanillu­drop­um og hvíta borðed­ik­inu, hellið blönd­unni út í þegar eggja­hvít­urn­ar hafa náð stíf­um topp­um og hrærið sam­an við 1/​2 mín. leng­ur.
  6. Setjið smjörpapp­ír á ofn­plötu, setjið 2 msk af mar­ens, sléttið úr hon­um og myndið eins kon­ar skál. Gerið skál­ar úr öll­um mar­ens­in­um en passið að hafa smá­bil á milli skál­anna því mar­ens­inn stækk­ar ör­lítið í ofn­in­um.
  7. Bakið í 40-50 mín., slökkvið svo á ofn­in­um en ekki opna hann. Látið kök­urn­ar kólna með ofn­in­um. Takið þær út þegar ofn­inn hef­ur kólnað full­kom­lega.
  8. Þeytið rjómann og bræðið súkkulaðið. Skiptið rjóm­an­um á milli pavlóvanna, setjið 1 msk af kirsu­berjasósu ofan á rjómann og svo kirsu­ber ofan á, mjög sniðugt að skera kirsu­ber­in í tvennt og taka stein­inn úr.
  9. Dreifið svo brædda súkkulaðinu yfir. Svo er bara að njóta hvers munn­bita. 
mbl.is/​Linda Ben
mbl.is/​Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert