Má nota þvottaefni til að vaska upp?

Er alltaf til nóg af uppþvottalegi í eldhúsinu þínu?
Er alltaf til nóg af uppþvottalegi í eldhúsinu þínu? mbl.is/Lauren Kolyn

Við höf­um oft­ar en einu sinni þvegið okk­ur um hend­urn­ar í eld­hús­inu með uppþvotta­legi – er þá leyfi­legt að nota handsápu við upp­vaskið í neyð? Spak­ir menn eru ekki all­ir sam­mála hvað þetta varðar.

Flest­ar handsáp­ur fara bet­ur með húðina þína en uppþvotta­lög­ur, en þær geta inni­haldið efni sem eru ekk­ert sér­stak­lega mat­væn. Ef þú lend­ir í þeirri aðstöðu að þurfa að þvo upp úr handsápu ber að skola leirtauið mjög vel á eft­ir.

Má nota þvotta­efni til að vaska upp?
Það má alls ekki not­ast við þvotta­efni. Þau inni­halda ýmis efni til að hreinsa skít­ug föt sem get­ur skemmt áferð og mynstur á leirtauinu þínu ef út í það er farið. Fyr­ir utan að það er heilsu­spill­andi að fá efn­in í kropp­inn ef eitt­hvað sit­ur eft­ir í glös­um og disk­um.

Hvað er til ráða ef það vant­ar uppþvotta­lög?
Hér kem­ur mat­ar­sódi til sög­unn­ar. Ef þú stend­ur í þeim spor­um að eiga ekki uppþvotta­lög og þarft að vinna þig út úr skít­ug­um disk­um þá er ráð að blanda sam­an ½ bolla af mat­ar­sóda við nokkr­ar mat­skeiðar af vatni. Nuddaðu svo leirtauið upp úr blönd­unni og skolaðu vel und­ir heitu vatni.

mbl.is/​Angies List
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert