Ástæðurnar fyrir því að blóðappelsínur eru algjör snilld!

Blóðappelsínur eru hollari en þig grunar.
Blóðappelsínur eru hollari en þig grunar. mbl.is/Valdemarsro.dk

Ef syk­ur­löng­un­in hell­ist yfir þig skaltu grípa í blóðapp­el­sínu. Hún inni­held­ur ekki meira en 60-90 kalórí­ur sem ger­ist ekki betri kost­ur í til­viki sem þessu. Þær eru oft notaðar í bakst­ur, safagerð og kokteila svo eitt­hvað sé nefnt og út­kom­an verður alltaf ljúf­feng.

Nafnið staf­ar af því hversu rík­ar app­el­sín­urn­ar eru af antó­sý­a­nefni sem er flokk­ur vatns­leys­an­legra litar­efna og gefa rauða lit­inn, finnst einnig í rauðkáli og rauðlauk. Blóðapp­el­sín­ur eru líka rík­ar af C-víta­míni og inni­halda meira magn en ráðlagður dags­skammt­ur seg­ir til um. Þær inni­halda fullt af öðrum víta­mín­um og nær­ing­ar­efn­um eins og fólín­sýru sem er mik­il­vægt fyr­ir rauðu blóðkorn­in í lík­am­an­um okk­ar, því er ekki yfir neinu að kvarta. Við leyf­um einni sal­atupp­skrift að fylgja með sem inni­held­ur þess­ar frá­bæru rauðleitu app­el­sín­ur.

Ástæðurnar fyrir því að blóðappelsínur eru algjör snilld!

Vista Prenta

Sal­at­blanda með blóðapp­el­sín­um

  • 2-3 blóðapp­el­sín­ur
  • 125 g kletta­sal­at
  • 2 dl græn­kál, hvít­kál eða baby spínat, fínt saxað
  • 1 dl pek­an­hnet­ur

Dress­ing:

  • 2 msk. ólífu­olía
  • 1 msk. epla­e­dik
  • 1 tsk. gróft sinn­ep
  • 1 msk. hun­ang

Aðferð:

  1. Hrærið hrá­efn­in í dress­ing­una vel sam­an og veltið sal­at­inu upp úr blönd­unni.
  2. Setjið í skál.
  3. Skerið blóðapp­el­sín­una í bita og bætið út í sal­atið ásamt gróf­hökkuðum pek­an­hnet­um.
mbl.is/​Valdemars­ro.dk
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert