Beikonvafinn aspas fyrir ketó kroppa

Aspas og beikon, stökkt og brjálæðislega gott snakk.
Aspas og beikon, stökkt og brjálæðislega gott snakk. mbl.is/Eazypeazymealz.com

Við bjóðum þessa girni­legu bei­kon­vöfðu aspas­stöngla vel­komna hér inn. Stökk­ur og bragðgóður for­rétt­ur eða morg­un­mat­ur, eða sem kvöldsnakk – það má borða þetta öll­um stund­um ef við mætt­um ráða. Hér mæl­um við með að setja bei­kon­vafða asp­asinn á ofn­grind til að hit­inn leiki bet­ur all­an hring­inn um snakkið.

mbl.is/​Eazypeazy­mealz.com

Beikonvafinn aspas fyrir ketó kroppa

Vista Prenta

Bei­kon­vaf­inn asp­as fyr­ir ketó kroppa

  • 24 aspas­stöngl­ar
  • 12 beikonsneiðar
  • 1 tsk. ólífu­olía
  • ½ tsk. hvít­laukssalt
  • ½ tsk. svart­ur pip­ar

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn í 200°.
  2. Skerið end­ann af aspasn­um og dreypið ólífu­olíu yfir. Stráið hvít­laukssalti og svört­um pip­ar yfir.
  3. Skerið beikonsneiðarn­ar til helm­inga, þannig að þú fáir tvær lang­ar ræm­ur úr einni. Vefjið einni bei­kon­ræmu utan um asp­asinn og setjið á ofn­grind ofan á ofn­plötu.
  4. Bakið í 10 mín­út­ur og notið töng til að snúa þeim við í ofn­in­um. Bakið áfram í 10-15 mín­út­ur eða þar til bei­konið er al­veg að verða stökkt. Setjið þá ofn­inn á grillstill­ingu í 1-2 mín­út­ur þar til asp­asinn fær þetta stökka yf­ir­bragð.
mbl.is/​Eazypeazy­mealz.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert