Vissir þú að tannburstinn þinn er tryllitæki?

Tannburstinn er lítið töfratæki að okkar mati.
Tannburstinn er lítið töfratæki að okkar mati. mbl.is/Joe Lingeman

Við höf­um sagt frá ótal hug­mynd­um um hvernig megi nota gamla tann­bursta við þrif. Því þeir kom­ast nefni­lega aðeins lengra og bet­ur á litla þrönga staði sem önn­ur tól eiga ekki roð í.

Næst þegar þú ætl­ar að henda út göml­um tann­bursta skaltu prófa þetta trix. Settu tann­burst­ann í pott með vatni og láttu sjóða. Taktu þá töng og prófaðu að beygja tann­bursta-haus­inn um 90 gráður. Leyfðu burst­an­um að kólna í þess­ari stell­ingu og þá ertu kom­inn með frá­bært verk­færi sem auðveld­ar þrif­in enn meira.

Setjið tannburstann í sjóðandi heitt vatn.
Setjið tann­burst­ann í sjóðandi heitt vatn. mbl.is/​Joe Lingem­an
Beygðu hausinn á tannburstanum og þú ert komin með nýtt …
Beygðu haus­inn á tann­burst­an­um og þú ert kom­in með nýtt tól sem mun auðvelda þrif­in. mbl.is/​Joe Lingem­an
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert