Alls ekki að gera þetta með steypujárnspönnu

Steypujárnspönnur eru frábærar í eldamennskuna að okkar mati.
Steypujárnspönnur eru frábærar í eldamennskuna að okkar mati. mbl.is/Joe Lingeman

Járn­pönn­ur hafa aldrei verið eins vin­sæl­ar og núna, enda stór­sniðugar til að elda mat­inn, sér­stak­lega þegar þú get­ur skellt pönn­unni síðan beint inn í ofn og líka borið rétt­inn fram á henni. Hér eru nokk­ur atriði sem vert er að hafa í huga til að auka lífs­lengd pönn­unn­ar.

Notið pönn­una eins oft og þið getið
Steypu­járn­spanna verður bara betri og betri eft­ir því sem þú not­ar hana meira. Sum­um finnst erfitt að elda á pönn­unni þegar hún er ný, en því meira sem þú not­ar pönn­una, því meiri húð mynd­ast á henni sem ger­ir elda­mennsk­una sára­ein­falda.

Ekki láta hana liggja í bleyti
Forðist með öll­um mætti að fylla pönn­una af sápu­vatni og láta hana standa í ein­hverja tíma til að ná mat­ar­leif­um úr. Til lengri tíma gæti pann­an sogið vatnið í sig og byrjað að ryðga – og það vilj­um við ekki. Ef þú ert að glíma við fast­ar mat­ar­leif­ar er ágæt­is­ráð að setja nokkra bolla af vatni út á pönn­una og láta suðuna koma upp. Þá er auðveld­ara að skrapa mat­ar­leif­arn­ar í burtu. Skolið, þurrkið, berið olíu á pönn­una og hún er til­bú­in til notk­un­ar.

Enga grófa þrifs­vampa
Eins frá­bær­ir og þrifs­vamp­ar eru í alls kyns verk­efn­um skaltu ekki nota grófa svampa á pönn­una. Slík­ir svamp­ar rispa pönn­una meira en jár­ná­höld við elda­mennsk­una.

Geymdu pönn­una á góðum stað
Sum­ir eru gjarn­ir á að geyma pönn­una inni í ofni á meðan hún er ekki í notk­un sem er ekki endi­lega besti staður­inn. Sér­stak­lega þegar þú gleym­ir að taka pönn­una úr ofn­in­um áður en þú byrj­ar að hita hann. Geymdu pönn­una á góðum stað og helst með öðrum pott­um og pönn­um. Gott er að setja eld­húspapp­ír á milli ef þú legg­ur nokkr­ar pönn­ur sam­an.

Gott er að setja eldhúspappír á milli til að rispa …
Gott er að setja eld­húspapp­ír á milli til að rispa ekki pönn­urn­ar. mbl.is/​Joe Lingem­an
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert