Nautalund að hætti RVK meat

Grilluð nautalund að hætti RVK Meat.
Grilluð nautalund að hætti RVK Meat. Ásdís Ásgeirsdóttir

Hróp­um við ekki halelúja þegar okk­ur áskotn­ast upp­skrift að nauta­lund frá steik­arstaðnum RKV meat. Með þessa upp­skrift að vopni er nán­ast óhugs­andi að eitt­hvað klikki. 

Nautalund að hætti RVK meat

Vista Prenta

Grilluð nauta­lund

Fyr­ir 4
  • 1 kg nauta­lund skor­in í 250 g steik­ur
  • 8 stk. vor­lauk­ur
  • seljurót­armauk (sjá upp­skrift að neðan)
  • 600-800 g kart­öfl­ur, smælki
  • soðgljái (demi glaze)
  • 1 stk. seljurót
  • olía
  • salt og pip­ar

Skerið end­ana af selju­rót­inni en látið hýðið vera á. Hellið smá olíu yfir og saltið. Setjið í 170°C heit­an ofn og setjið hita­mæli í miðjuna á selju­rót­inni og eldið þar til kjarn­hit­inn nær 90°C.

Grillið nauta­lund­ina á mjög heitu grilli, þar til ykk­ar full­komnu steik­ingu er náð. Okk­ar meðmæli er „medi­um rare“ eða þar til kjarn­hit­inn nær 55°C. Gott er að láta steik­ina hvíla í smá­tíma áður en hún er bor­in fram.

Selju­rót­in er skor­in niður í bita og elduð á pönnu með olíu, salti og pip­ar ásamt vor­laukn­um.

Sjóðið kart­öfl­urn­ar og pönnu­steikið þær svo. Einnig er hægt að elda þær í ofni með olíu og smá timj­an og hvít­lauk.

Seljurót­armauk

  • 1 stk. seljurót
  • 250 ml rjómi
  • 250 ml mjólk
  • salt
  • smjör

Afhýðið selju­rót­ina og skerið í bita og setjið í pott með rjóma og mjólk. Eldið þar til mjúkt. Setjið í bland­ara og maukið. Bætið smjöri við og smakkið til með salti. Seljurót­armaukið er svo hitað upp í potti áður en það er borið fram.

Raðið seljurót á disk­inn og seljurót­armauk­inu. Gott er að raspa smá ferska pip­ar­rót yfir og skreyta með smá vatnakarsa. Setjið svo nauta­lund­ina á disk­inn. Hellið soðgljáa yfir hana og berið fram.

Almar Ingvi Garðarsson, eigandi og veitingastjóri, og Guðmundur Víðir Víðisson, …
Alm­ar Ingvi Garðars­son, eig­andi og veit­inga­stjóri, og Guðmund­ur Víðir Víðis­son, eig­andi og yfir­kokk­ur RVK Meat. Ásdís Ásgeirs­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert