Dúnmjúkar og dásamlegar Cinnabon-bollur

mbl.is/María Gomez

Hvernig er hægt að stand­ast þenn­an full­komna samruna ís­lenska bollu­dags­ins og alls þess sem er am­er­ískt? Kanel­kon­fekt eins og það ger­ist best hér úr smiðju Maríu Gomez á Paz.is sem er held­ur bet­ur að poppa upp bollu­dag­inn.

Dúnmjúkar og dásamlegar Cinnabon-bollur

Vista Prenta

Dún­mjúk­ar og dá­sam­leg­ar Cinna­bon-boll­ur (am­er­ísk kanil­snúðabolla)

  • Einn pakki af Toro Hvete­boller-dufti, bakað eft­ir ís­lensk­um leiðbein­ing­um á pakka
  • 1 pakki vanillu Royal-búðing­ur
  • 1 pakki Toro-ostakrem
  • 125 g rjóma­ost­ur
  • 50 g smjör
  • 2,5 dl rjómi
  • 2,5 dl nýmjólk
  • 2 msk. og ½ bolli púður­syk­ur (hvort í sínu lagi)
  • 40 g smjör
  • 1 msk. kanill og 1 tsk. (hvort í sínu lagi)
  • 2 msk. flór­syk­ur

Aðferð:

  1. Bakið boll­urn­ar eft­ir leiðbein­ing­um.
  2. Í rjómakremið á milli er sett 2,5 dl mjólk og 2,5 dl rjómi, 2 msk. flór­syk­ur, 1 tsk. kanill og 2 msk. púður­syk­ur.
  3. Þessu er hrært sam­an með písk og vanillu­búðingi hrært sam­an við og pískað sam­an í 1 mín­útu. Leggið svo til hliðar.
  4. Svo er kanil­bráð búin til úr 40 g af smjöri, 1 msk. kanil og ½ bolla af púður­sykri sem er brætt sam­an í potti.
  5. Gerið svo rjóma­ostakremið ofan á með 50 g af mjúku smjöri og 125 g af rjóma­osti sem hrært er út í einn pakka af Toro-ostakremi.
  6. Nú er svo að setja boll­una sam­an en þá er kanil­bráð sett á botn­inn, kanil­rjómi fer ofan á og boll­unni lokað. Svo er ostakremið sett ofan á topp­inn.
mbl.is/​María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert