Lágkolvetnalax með blómkálsmús

mbl.is/Einn, tveir og elda

Hér erum við með frá­bær­an fisk­rétt sem er í senn ein­fald­ur en af­skap­lega bragðmik­ill og góður. Blóm­káls­mús­in er sann­ar­lega að slá í gegn enda full­kom­inn staðgeng­ill fyr­ir kart­öfl­ur og kol­vetn­in sem þeim fylgja. 

Þessi upp­skrift kem­ur frá Einn, tveir og elda og ef þú vilt há­marka líf­gæðin þá auðvitað bara pant­ar þú rétt­inn á heimasíðunni þeirra.

Lágkolvetnalax með blómkálsmús

Vista Prenta
LKL Bakaður pestólax með blóm­káls­mús fyr­ir tvo
  • 400 g lax
  • 300 g blóm­kál
  • 1 shallot­lauk­ur
  • 2 grein­ar kórí­and­er
  • 50 g sal­at 
  • 1 avóka­do
  • 50 g sýrður rjómi
  • 50 g smjör
  • 1-2 tsk. krydd­blanda (papriku­duft, tim­i­an, salt og pip­ar)


Aðferð:
Hitið ofn­inn í 180°C og blást­ur og hitið vatn í potti að suðu. Skerið blóm­kálið í grófa bita og sjóðið í 5 mín­út­ur.
Skerið lax­inn í tvær steik­ur og kryddið með krydd­blöndu. Færið hann í eld­fast mót og smyrjið pestó­inu yfir. Bakið lax­inn í 15 mín­út­ur eða þar til fulleldaður.
Saxið niður shallot­lauk­inn og steikið hann á vel heitri pönnu upp úr olíu í nokkr­ar mín­út­ur eða þar til hann verður mjúk­ur.

Sigtið blóm­kálið frá vatn­inu og setjið í bland­ara eða mat­vinnslu­vél ásamt kórí­and­er, smjöri, sýrðum rjóma, shallot­laukn­um og smá salti og pip­ar.
Skerið avóka­dóið í ten­inga og blandið sam­an við sal­atið. Berið bakaða pestólax­inn fram ásamt blóm­káls­mús­inni og sal­at­inu. Njótið vel!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert