IKEA með nammi sem setja þarf saman

mbl.is/IKEA

Ert þú í þeim hópi sem vill láta ljós sitt skína og sýna meist­ara­takta þegar setja á sam­an IKEA-vöru? Þá muntu elska súkkulaðið sem versl­un­ar­keðjan send­ir frá sér fyr­ir þessa páska.

Við erum að tala um súkkulaði í lag­inu eins og kan­ína sem setja þarf sam­an – rétt eins og hvert annað hús­gagn frá IKEA. Hér er eng­in þörf á verk­fær­um og það fylgja held­ur eng­ar leiðbein­ing­ar þar sem kan­ín­an er sam­sett úr ein­ung­is þrem­ur hlut­um.

Kan­ín­an er vænt­an­leg í versl­un IKEA hér­lend­is síðar í vik­unni og þá verður gam­an.

Nýtt páska-súkkulaði frá IKEA sem setja þarf saman.
Nýtt páska-súkkulaði frá IKEA sem setja þarf sam­an. mbl.is/​IKEA
Frábær hugmynd frá IKEA risanum.
Frá­bær hug­mynd frá IKEA ris­an­um. mbl.is/​IKEA
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert