Ketó megrunarpillur sagðar vera málið

Eins og all­ir vita er ketó mataræðið það allra heit­asta í dag og má fast­lega reikna með því að hálf þjóðin sé á því ef marka má sölu­töl­ur fyr­ir rjóma og bei­kon.

Við rák­umst á töfl­ur á ver­ald­ar­vefn­um sem sagðar eru ketó í töflu­formi og eiga að sjá til þess að lík­am­inn brenni bara fitu. Sann­kallaðar töfra­pill­ur sem eiga að geta grennt viðkom­andi á undra­verðum hraða.

Hvort þetta virk­ar eða hvort um er að ræða hrein­ræktaða sná­ka­ol­íu skal ósagt látið en við höll­umst að því síðar­nefnda - því flest allt það sem hljóm­ar of gott til að vera satt er það oft­ast.

Þessi ungi maður er sagður hafa grennst svakalega með því …
Þessi ungi maður er sagður hafa grennst svaka­lega með því að taka Ket­oP­ure töfl­urn­ar. Ljós­mynd/​Ket­oP­ure
Ljós­mynd/​Ket­oP­ure
Fólk virðist almennt mjög ánægt með árangurinn.
Fólk virðist al­mennt mjög ánægt með ár­ang­ur­inn. Ljós­mynd/​Ket­oP­ure
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert