Bollur sem rugla algjörlega í þér

Bollur sem þú munt klárlega vilja baka aftur.
Bollur sem þú munt klárlega vilja baka aftur. mbl.is/Sandra Palmquist

Það slær ekk­ert út ilm­inn af ný­bökuðum boll­um, smurðar með góðu lagi af smjöri. Þess­ar haframjöls­boll­ur með hun­angi munu metta marga maga og eru frá­bær­ar í nesti. Boll­ur eru best­ar með osti, sultu, ferskri papríku eða öðru því sem til er í ís­skápn­um hverju sinni – þitt er valið.

Bollur sem rugla algjörlega í þér

Vista Prenta

Holl­ustu­boll­ur með hun­angi

  • 50 g ger
  • 5 dl ilvolgt vatn
  • 2 tsk. salt
  • 2 msk. ólífu­olía
  • 1 msk. hun­ang
  • ½ dl hafraklíð
  • 5 dl haframjöl
  • 5 dl hveiti
  • ½ dl mjólk til að pensla
  • ½ dl haframjöl til að skreyta

Aðferð:

  1. Leysið gerið upp í volgu vatni. Setjið salt, ólífu­olíu, hun­ang, haframjöl út í og blandið sam­an í nokkr­ar mín­út­ur.
  2. Bætið hveiti út í smátt og smátt þar til deigið byrj­ar að losna frá könt­un­um. Leggið hreint viska­stykki yfir og leyfið deig­inu að hef­ast í 1 klukku­stund.
  3. Stillið ofn­inn á 225°C. Skiptið deig­inu í 20 bita og mótið í boll­ur. Leggið á bök­un­ar­papp­ír á bök­un­ar­plötu. Leggið viska­stykki yfir og leyfið að hef­ast í 30 mín­út­ur.
  4. Penslið boll­urn­ar með mjólk og dreifið haframjöli yfir. Bakið í miðjum ofni í 10-12 mín­út­ur þar til þær eru orðnar fal­leg­ar á lit. Leyfið þeim aðeins að kólna áður en born­ar fram. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert