Ostaídýfa sem tryllir bragðlaukana

Þessi ídýfa mun heilla alla sem á henni smakka.
Þessi ídýfa mun heilla alla sem á henni smakka. mbl.is/Thecookierookie.com

Ef þú leit­ar að hinni full­komnu ídýfu sem mun trylla bragðlauk­ana og lít­ur einnig stór­kost­lega út, þá er hana hér að finna. Þrjár teg­und­ir af osti, hvít­lauk­ur, basilika og tóm­at­ar – er hægt að biðja um eitt­hvað meira? Ef það er eitt­hvað sem við þörfn­umst í lífið þessa dag­ana, þá er það upp­skrift sem þessi.

Ostaídýfa sem tryllir bragðlaukana

Vista Prenta

Ostaí­dýfa sem tryll­ir bragðlauk­ana

  • 1 msk. ólífu­olía
  • 1 bolli ricotta
  • 500 g geita­ost­ur
  • ¾ bolli fetakubb­ur
  • 1 hvít­lauksrif, marið
  • ¼ tsk. salt
  • 1 tsk. sítr­ónusafi
  • ¼ bolli fersk basilika, söxuð
  • 120 g gul­ir cherry-tóm­at­ar
  • 120 g rauðir cherry-tóm­at­ar
  • Ristað brauð eða kex

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn í 180°C.
  2. Spreyið eld­fast mót með bök­un­ar­spreyi.
  3. Blandið sam­an í stóra skál ólífu­olíu, ricotta, geita­osti, fetakubbi, hvít­lauk, salti, sítr­ónusafa og basiliku. Þegar allt hef­ur bland­ast ágæt­lega sam­an bætið þá út í helm­ingn­um af tómöt­un­um.
  4. Setjið blönd­una í eld­fasta mótið og dreifið rest­inni af tómöt­un­um yfir.
  5. Bakið í ofni í 30-40 mín­út­ur þar til ídýf­an byrj­ar að taka lit.
  6. Berið fram með ristuðu brauði eða góðu kexi.
Berið fram með ristuðu brauði eða góðu kexi.
Berið fram með ristuðu brauði eða góðu kexi. mbl.is/​Thecookierookie.com
mbl.is/​Thecookierookie.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert