Eiga plönturnar þínar erfitt með að halda lífi?

Hvernig líður plöntunum þínum?
Hvernig líður plöntunum þínum? mbl.is/Greenify

Kann­astu við eft­ir­far­andi: Blöðin á plönt­un­um þínum eru orðin brún og kant­arn­ir gul­ir? Þá þurf­um við að tala sam­an.

Við eig­um það til að van­rækja eða kæfa „grænu börn­in“ okk­ar í kær­leika, svo mikið að þau vesl­ast upp og deyja – og hálf­dauð planta er ekki að fara gera neitt fyr­ir mynd sem við birt­um á sam­fé­lags­miðlum og stær­um okk­ur af heim­il­inu. Það er alltaf best að velja plönt­ur á heim­ilið sem passa, þá hugsað út frá raka, hita­stigi og birtu.

Of mikið eða of lítið af kær­leika
Við eig­um það til að vökva of lítið eða of mikið, sem leiðir til þess að plant­an deyr. Sum­ir vilja meina að plönt­ur þurfi minna vatn yfir vetr­ar­tím­ann en það fer allt eft­ir hversu þurrt loftið er í íbúðinni. Best er að fá ráðlegg­ing­ar hjá blóma­sal­an­um hversu oft og mikið þarf að vökva og jafn­vel kaupa lít­inn raka­mæli sem stungið er í mold­ina.

Birt­an skipt­ir máli
Þvi miður hafa sum­ar plönt­ur upp­lifað drama­tísk­an dauðdaga úti í glugga þar sem þær bak­ast í sól­inni sem skín inn, sér­stak­lega þeim sem snúa í suðurátt. Flest­ar plönt­ur vilja birtu án þess að liggja í sólbaði fyr­ir utan kaktusa sem þríf­ast mjög vel í slíku um­hverfi. Suðræn­ar plönt­ur vilja bjart og rakt um­hverfi en standa hér á landi oft í dimm­um og þurr­um rým­um. Því er gott að leggja þær annað slagið und­ir sturtu­haus­inn eða sprauta á þær vatni.

Nær­ing
Frá apríl til sept­em­ber er mik­ill vöxt­ur hjá græn­blöðung­um og því mik­il­vægt að plönt­urn­ar fái góða nær­ingu. Yfir vetr­ar­tím­ann líta þær oft soldið þreytt­ar út en það þýðir samt ekki að þær líði nær­ing­ar­skort, þær liggja bara í hálf­gerðum dvala.

Kuldi og gegn­um­trekk­ur
Í mörg­um til­fell­um get­ur stofuplanta ekki þrif­ist í hita­stigi und­ir 10-15 gráðum. Ef þær lenda í gegn­um­trekk eða eru flutt­ar út í mikið frost af heim­il­inu geta þær fengið sjokk. At­hugið því vel hvar þið staðsetjið plönt­urn­ar.

Blóma­pott­ar
Blóma­pott­ar geta verið eins flott­ir og plönt­urn­ar sjálf­ar en það skipt­ir máli hvernig pott þú vel­ur fyr­ir plönt­una. Mælt er með að velja pott með gati í botn­in­um, þannig get­ur vatnið lekið niður í und­ir­skál­ina ef þú vökv­ar of mikið. Það er einnig erfiðara fyr­ir ræt­ur blóms­ins að anda þegar þær eru í lokuðum pott­um en þá eru til aðrar lausn­ir sem hægt er að setja í botn­inn, eins og litla steina. Eins er nauðsyn­legt að velja blóma­pott sem er stærri en pott­ur­inn sem plant­an kom í, því við verðum að gefa henni rými til að vaxa og dafna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert