Er baðmottan þín full af bakteríum?

Tatomm

Sumt verðum við bara að vita, sér­stak­lega þegar kem­ur að hrein­læti baðmott­unn­ar. Baðmott­ur eru það fyrsta sem við stíg­um á eft­ir góða sturtu­ferð og það er ekk­ert ógirni­legra en að stíga á skít­uga mottu.

Málið er að mott­an ligg­ur oft­ast á gólf­inu án þess að vera hengd upp. Þannig safn­ast mun fyrr bakt­erí­ur sem grass­era og njóta hverr­ar mín­útu í röku um­hverfi mott­unn­ar. Því er afar mik­il­vægt að hengja mott­una upp eft­ir hverja notk­un og þvo reglu­lega.

4 góð ráð til að halda baðmott­unni hreinni:

  • Hengdu alltaf mott­una upp eft­ir notk­un.
  • Þvoið mott­una eins oft og hand­klæði (sirka einu sinni í viku).
  • Þvoið við 60°.
  • Gott er að velja mottu með hörðu yf­ir­lagi eins og úr tré eða plasti sem er ekki eins mót­tæki­leg fyr­ir bakt­erí­um og bóm­ull­in er.
Hreinar tær á skítuga mottu, við viljum alls ekki sjá …
Hrein­ar tær á skít­uga mottu, við vilj­um alls ekki sjá það ger­ast. mbl.is/​Getty Ima­ges
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert