Fullt hús matar með marmaraáferð

Páskaskrautið í ár eru egg með marmaraáferð.
Páskaskrautið í ár eru egg með marmaraáferð. mbl.is/Delish.com

Hver hef­ur ekki málað á eitt eða tvö egg fyr­ir páska? Mjög vin­sælt skóla­verk­efni frá fyrri tíð sem fell­ur seint úr gildi – að mála á egg og líma á það fjaðrir til skrauts.

Hér erum við aft­ur á móti með öðru­vísi hug­mynd þar sem rjómi og edik kem­ur til sög­unn­ar – svona skreyt­ir þú fullt hús mat­ar og dreg­ur alla fjöl­skyld­una með í verkið.

Byrjið á því að setja heil egg í skál. Hellið …
Byrjið á því að setja heil egg í skál. Hellið ed­iki yfir egg­in og látið liggja í baði í 2 mín­út­ur. mbl.is/​Del­ish.com
Dreyfið rjóma á bökunarplötu og setjið skvettur af matarlit út …
Dreyfið rjóma á bök­un­ar­plötu og setjið skvett­ur af mat­ar­lit út á. mbl.is/​Del­ish.com
Takið tannstöngul og dreifið úr litnum í rjómann.
Takið tann­stöng­ul og dreifið úr litn­um í rjómann. mbl.is/​Del­ish.com
Veltið eggjunum upp úr rjómanum og litnum. Látið standa í …
Veltið eggj­un­um upp úr rjóm­an­um og litn­um. Látið standa í rjóm­an­um í 10-15 mín­út­ur og skolið svo egg­in. mbl.is/​Del­ish.com
mbl.is/​Del­ish.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert