Kjúklingarétturinn þegar þú vilt gera vel við þig

Sá allra besti sem þú munt sjá á netinu í …
Sá allra besti sem þú munt sjá á netinu í dag. mbl.is/Ethan Calabrese

Þess­ar­ar út­gáfu af kjúk­linga­rétti er svo oft þörf á kvöld­verðar­borðið, þegar við þurf­um að gera vel við bragðlauk­ana. Hér erum við með ost og gæðaskinku sem faðmar kjúk­ling­inn að sér á meðan hann bak­ast í ofni.

Kjúklingarétturinn þegar þú vilt gera vel við þig

Vista Prenta

Kjúk­linga­rétt­ur­inn þegar þú vilt gera vel við þig

  • 4 kjúk­linga­bring­ur frá Ali
  • sjáv­ar­salt
  • nýmalaður pip­ar
  • Geita­ost­ur eða ann­ar ost­ur að eig­in vali
  • ½ bolli rif­inn mozzar­ella
  • 4 sneiðar prosciutto-skinka eða önn­ur sam­bæri­leg

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn í 200°C.
  2. Fletjið aðeins bring­urn­ar út með kjöt­hamri. Saltið og piprið.
  3. Setjið 1-2 msk. af geita­osti (eða öðrum sam­bæri­leg­um) við end­ann á bring­unni og stráið rifn­um mozzar­ella yfir. Rúllið bring­unni upp og byrjið á end­an­um þar sem ost­ur­inn er. Vefjið því næst skinkusneið utan um.
  4. Leggið í eld­fast mót og bakið í ofni í 30-35 mín­út­ur eða þar til kjúk­ling­ur­inn er til­bú­inn.
mbl.is/​Et­h­an Cala­brese
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert