Þrjú leynitrix sem hjálpa þér að léttast

mbl.is/

Þyngd­in get­ur verið leynd­ar­mál en leynd­ar­mál­in sem hafa áhrif á þyngd­ina þína ætl­um við að af­hjúpa hér.

Ekki hafa sæt­ind­in sýni­leg
Rann­sókn frá Cornell Uni­versity Food & Brand Lab hef­ur sýnt fram á að kon­ur sem geyma sæl­gæti, gos­drykki og annað snakk á sýni­leg­um stað voru þyngri en þær sem geyma þessa hluti ofan í skúffu. En þetta gild­ir ekki ein­ung­is um snakk og önn­ur sæt­indi, því dag­blöð og tíma­rit sem standa uppi við geta aukið lík­urn­ar um helm­ing á að þú gríp­ir þér eitt­hvað til að maula á við lest­ur­inn.

Svefn­her­bergið get­ur haft áhrif á þyngd­ina
Rann­sókn­ir hafa einnig sýnt fram á samasem­merki á milli ljós­magns í svefn­her­berg­inu og þyngd­ar kvenna. Því meira ljós sem er í her­berg­inu á nótt­inni, því meiri lík­ur eru á því að þú sért nokkr­um kíló­um of þung. Svo muna að draga niður gard­ín­urn­ar og slökkva á öll­um tækj­um – jafn­vel mála her­bergið í dökk­um lit!

Næg­ur svefn
Of lít­ill svefn get­ur fengið þig til að drekka meira kaffi. Rann­sókn frá The American Heart Associati­on hef­ur sýnt fram á að fáir þú klukku­tíma og 20 mín­út­um minni svefn en mælt er með eru lík­ur á að þú mun­ir taka inn 549 auka kal­orí­ur á dag.

Viltu vita leyndarmál sem hafa áhrif á þyngdina?
Viltu vita leynd­ar­mál sem hafa áhrif á þyngd­ina? mbl.is/​Pant­h­er­stock
mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka