Geggjaðir sveppir sem eru fullkomið meðlæti

Sjáið þessa girnilegu sveppi.
Sjáið þessa girnilegu sveppi. mbl.is/Park Feierbach

Sveppameðlæti er svo van­metið – en svepp­ir eru í alla staði stór­kost­leg­ir og passa svo vel með nán­ast öll­um mat. Hér er besta út­gáf­an af grilluðum svepp­um sem hafa legið í bal­sa­mikbaði. 

Geggjaðir sveppir sem eru fullkomið meðlæti

Vista Prenta

Besta út­gáf­an af grilluðum bal­sa­mik­svepp­um

  • ¼ bolli bal­sa­mike­dik
  • 2 msk. soja sósa
  • 2 hvít­lauksrif, mar­in
  • Svart­ur pip­ar
  • 450 g svepp­ir, skorn­ir í þykk­ar sneiðar
  • Fersk stein­selja, smátt skor­in

Aðferð:

  1. Pískið sam­an í stóra skál bal­sa­mik, sojasósu, hvít­lauk og pip­ar. Setjið skorna svepp­ina út í og látið mar­in­er­ast í 20 mín­út­ur.
  2. Hitið grillið á meðal­hita. Setjið svepp­ina upp á prjóna og grillið í 2-3 mín­út­ur á hvorri hlið.
  3. Stráið sein­selju yfir og berið fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert