Einföld skyrkaka með Daim-kurli

mbl.is/Berglind Guðmundsdóttir

Þetta er einn af þess­um eft­ir­rétt­um eða veislu­rétt­um sem klikka aldrei. Hér í sjóðheitri og bragðlauka­tryll­andi út­gáfu Berg­lind­ar Guðmunds­dótt­ur á GRGS.is.

Maður hein­lega þarf ekki meira...

Einföld skyrkaka með Daim-kurli

Vista Prenta

Ein­föld skyrkaka með Daim-kurli

  • 1 pakki hafra­kex með súkkulaði
  • 70 g smjör
  • 2 pakk­ar Daim-kurl
  • 500 ml rjómi
  • 1 stór dós vanillu­skyr
  • 1 askja hind­ber

Aðferð:

  1. Myljið kexið smátt.
  2. Bræðið smjör og blandið mulda kex­inu sam­an við. Setjið blönd­una í bök­un­ar­form (26 cm) og geymið í kæli þar til botn­inn hef­ur harðnað.
  3. Setjið helm­ing­inn af Daim-kurl­inu yfir botn­inn.
  4. Þeytið rjómann og blandið sam­an við vanillu­skyrið. Setjið yfir kex­botn­inn og yfir það setjið þið af­gang­inn af Daim-kurl­inu og ber­in.
  5. Setjið plast­filmu yfir og geymið í ís­skáp í 6 klst. áður en hún er bor­in fram.
mbl.is/​Berg­lind Guðmunds­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka