Sex atriði sem þú vissir ekki um aspas

Það eru margar skrítnar staðreyndir að finna um aspas.
Það eru margar skrítnar staðreyndir að finna um aspas. mbl.is/Pexels

Þetta mjóa fína græn­meti sem finnst í tveim­ur lit­um, grænu og hvítu, er fullt af trefj­um, víta­mín­um, kalki og fól­in­sýru. Þar fyr­ir utan eru nokkr­ar skemmti­leg­ar og skrítn­ar staðreynd­ir um stöngl­ana að finna. 

Þvagið get­ur lyktað und­ar­lega
Það fer eft­ir genun­um hvort þvagið þitt muni lykta eft­ir að hafa gætt þér á asp­as, en um helm­ing­ur þeirra sem gæða sér á asp­as finna fyr­ir skrít­inni lykt. 

Þekkt til margra ára
Asp­as er ein elsta ræktaða eld­hús­jurtin og hef­ur verið borðuð í þúsund­ir ára, en vitað er af asp­as í Egyptalandi fyr­ir 20 þúsund árum síðan. Og þeir koma fyr­ir í þekktri mat­reiðslu­bók „De Re Coquin­aria“ frá þriðju öld.

Höfuðborg asp­as­ins
Það er talað um þýska bæ­inn Schwetz­ingen sem höfuðborg græna stöng­uls­ins. Ár hvert er hald­in asp­ashá­tið þar sem meðal ann­ars ný asp­as-drotn­ing er krýnd.

Kína
Það er í Kína sem flest­ur asp­as er ræktaður og eng­inn ann­ar staður sem slær því við.

Frá plöntu­fjöl­skyldu
Asp­as er úr plöntu­fjöl­skyldu sem út­skýr­ir kannski út­litið. Plant­an lík­ist einna helst kol­krabba með 6-8 sterk­ar ræt­ur út til hliðanna. Upp­skeru­tím­inn er frá miðjum apríl fram í miðjan maí.

Sól­kysst­ur asp­as
Grænn asp­as er í raun hvít­ur asp­as sem hef­ur lit­ast af sól­inni. Grænn asp­as hef­ur vaxið of­anj­arðar og því fengið á sig þenn­an lit af sól­ar­geisl­un­um. Hvít­ur asp­as vex neðanj­arðar og þess vegna þarf að skræla hann frá toppi til táar áður en hann er mat­reidd­ur.

mbl.is/​Pex­els
mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert