Ef þig vantar millimál og vilt gera vel við þig er þessi ánægja það sem þú leitar að. Pestósnúðar eru einnig fullkomnir með pastaréttum svo ekki sé minnst á saumaklúbbinn. Við gætum borðað nýbakaða snúða í öll mál!
Það má útbúa þessa í tíma og setja í frysti. Leyfið þeim bara að kólna áður en þú pakkar þeim inn og setur í frysti. Og best er að láta þá þiðna alveg í pokanum og hita þá svo í smá stund í ofni.
Bakaðu ánægju með pestósnúðum (30 stk.)
- 15 g ger
- 3 dl volgt vatn
- 400 g hveiti
- 2 tsk. salt
- 2 msk. ólífuolía
- Grænt pestó
Aðferð:
- Hrærið gerið út í volgt vatn. Bætið hveiti við, smátt og smátt. Setjið salt og olíu út í og hnoðið.
- Látið deigið hefast í 1 tíma eða þar til daginn eftir í ísskáp. Rúllið deigið þunnt út í sirka 30x60 cm.
- Smyrjið pestóinu á og rúllið því næst deiginu upp eins og rúllutertu. Skerið í sneiðar og leggið þá í muffinsform (álform).
- Bakið við 200° C í 12 mínútur eða þar til gylltir á lit. Leyfið þeim að kólna á grind.