Geggjaðar súrdeigsbollur með múslí

Ekkert jafnast á við nýbakaðar bollur.
Ekkert jafnast á við nýbakaðar bollur. mbl.is/Mainlifestyle.dk

Þess­ar súr­deigs­boll­ur eru al­gjör unaður sem þú slepp­ur ekki við að prófa. Þær eru al­gjör­lega ómiss­andi hvar og hvenær sem er.

Geggjaðar súrdeigsbollur með múslí

Vista Prenta

Súr­deigs­boll­ur með mús­lí (15 stk.)

  • 5 dl kalt vatn
  • 1½ dl súr­deig
  • 500 g hveiti
  • 100 g heil­hveiti
  • 15 g salt
  • 200 g hun­angsristað mús­lí
  • 50 g rús­ín­ur
  • Ólífu­olía

Aðferð:

  1. Hrærið vant og súr­deig sam­an. Bætið hveiti, heil­hveiti og salti út í og hnoðið þar til slétt.
  2. Hnoðið mús­lí og rús­ín­um var­lega út í og leggið því næst deigið í ol­íu­sm­urða skál með loki og látið hef­ast í tvö­falda stærð sína, í um það bil þrjá tíma.
  3. Leggið deigið á borðið með hveiti. Dreifið smá­veg­is af haframjöli yfir deigið og skiptið því upp í 15 bita (boll­ur).
  4. Leggið á bök­un­ar­papp­ír á bök­un­ar­plötu og bakið við 250°C í 20 mín­út­ur. Gott er að pensla þær aðeins með vatni ef þér finnst deigið vera orðið þurrt. Látið kólna á rist.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert