Hermir eftir stórstjörnum með matarmyndum

Rihanna er alltaf eitursvöl! Riley tekur lúkkið áfram með stálpott …
Rihanna er alltaf eitursvöl! Riley tekur lúkkið áfram með stálpott á höfðinu. mbl.is/Shutterstock/Riley Dashwood

Hún er ekki nema 9 ára göm­ul og heit­ir Riley Dashwood, stelp­an sem herm­ir eft­ir fræg­um í frétt­um. Riley  er með um 100 þúsund fylgj­end­ur á In­sta­gram eft­ir að hafa birt mynd­ir af sér þar sem hún lík­ir eft­ir klæðnaði stór­stjarna á borð við Kim Kar­dashi­an, Ri­hanna og Miley Cyr­us – þá á skop­leg­an máta.

Við sjá­um hana taka dressið sem Emma Stone bar á Óskar­sverðlauna­hátíðinni, en Emma var í fatnaði frá Lou­is Vuitt­on á meðan Riley lík­ir eft­ir með vöffl­um.

For­eldr­ar Riley eru henni til aðstoðar og segj­ast þau taka um eina mynd á viku og eyða frá 15-45 mín­út­um í hverja hug­mynd. Allt var þetta til gam­ans gert í upp­hafi sem svo vatt held­ur bet­ur upp á sig í vin­sæld­um.

Þessi mynd af Kim er frá árinu 2016 en dressið …
Þessi mynd af Kim er frá ár­inu 2016 en dressið dett­ur aldrei úr tísku. Riley fer hér aðra leið með álp­app­ír við hönd. mbl.is/​Shutter­stock/​Riley Dashwood
Emma Stone hér í fatnaði frá Louis Vuitton á óskarsverðlaunahátíðinni. …
Emma Stone hér í fatnaði frá Lou­is Vuitt­on á ósk­ar­sverðlauna­hátíðinni. Riley er hér í sams­kon­ar dressi búið til úr vöffl­um. mbl.is/​Shutter­stock/​Riley Dashwood
Árið 2011 birtist Nicki Minaj með þessa hárkollu á uppboð. …
Árið 2011 birt­ist Nicki Minaj með þessa hár­kollu á upp­boð. Brok­kolí og blóm­kál var und­ir­staðan að koll­unni henn­ar Riley. mbl.is/​Shutter­stock/​Riley Dashwood
Zendaya í rauðum sportgalla, brúnum jakka og hvítum háhæluðum skóm …
Zendaya í rauðum sport­galla, brún­um jakka og hvít­um há­hæluðum skóm á Michael Kors sýn­ingu á New York Fashi­on Week. Og Riley hér sem pulsa í hvít­um sokk­um. mbl.is/​Shutter­stock/​Riley Dashwood
Hér notar Riley brauðhleifa sem magavöðva til að herma eftir …
Hér not­ar Riley brauðhleifa sem maga­vöðva til að herma eft­ir fit­n­ess blogg­ar­an­um Ju­li­an Daigre. mbl.is/​Shutter­stock/​Riley Dashwood
Klósettpappírútfærsla á dressi Sabrinu Carpenter.
Kló­sett­papp­írút­færsla á dressi Sa­br­inu Carpenter. mbl.is/​Shutter­stock/​Riley Dashwood
Ashanti hér í jakka einum saman - og Riley í …
Ashanti hér í jakka ein­um sam­an - og Riley í pappa­kassa ein­um sam­an. mbl.is/​Shutter­stock/​Riley Dashwood
Joy Villa er lítið þekkt söngkona sem klæddist þessu dressi …
Joy Villa er lítið þekkt söng­kona sem klædd­ist þessu dressi á Grammy verðlaun­un­um árið 2019 en Riley tek­ur rif­járnið á þetta. mbl.is/​Shutter­stock/​Riley Dashwood
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert