Dekraðu við þig og þína með þessari gúrme sveppasúpu með kapers og vætukarsa. Súpur eru hinn mesti herramannsmatur, fyrir utan hvað þær eru einfaldur og þægilegar í matreiðslu.
Sveppasúpa sem hleypir vatni í munninn (fyrir 6)
Grunnur:
- 500 g sveppir
- 2 laukar
- ½ sellerí
- 2 stór hvítlauksrif
- 2 lárviðarlauf
- 2 msk. salt
- 5 timían-stilkar
- 10 piparkorn
- 3 lítrar vatn
Súpa:
- 500 g blandaðir sveppir
- 1 msk. smjör
- 1 msk. hveiti
- 2 l grunnur
- 100 ml rjómi
- Salt og pipar
- 1 tsk. rifið múskat
Annað:
- 300 g blandaðir sveppir
- Sirka 10 g smjör
- 4 msk. kapers
- Salt og pipar
- Vatnakarsi til skrauts
Aðferð:
Grunnur:
- Hreinsið sveppina og skerið þá gróflega. Bræðið smjör í potti og steikið sveppina.
- Bætið restinni af hráefnunum út í fyrir utan vatnið og hrærið vel í.
- Bætið vatninu út í og þegar byrjar að sjóða, lækkið þá í hitanum og látið malla í 1 tíma. Takið því næst af hitanum og sigtið.
- ATH: Það má geyma grunninn í allt að eina viku í ísskáp og einnig setja í frysti.
Súpan:
- Hreinsið sveppina og skerið í skífur. Bræðið smjör á pönnu og steikið sveppina upp úr því.
- Bætið hveiti út á pönnuna og hrærið saman. Bætið því næst grunninum út á og leyfið suðunni að koma upp. Látið malla í 5 mínútur.
- Bætið rjómanum út á og smakkið til með salti, pipar og múskati. Látið malla áfram í aðrar 5 mínútur.
Annað:
- Hreinsið sveppina og skerið í skífur. Steikið upp úr smjöri ásamt kapers í 3-5 mínútur rétt áður en súpan er borin fram. Smakkið til með salti og pipar og berið fram heita og skreytið með vatnakarsa.