VIPP fáanleg í sérstakri afmælisútgáfu

Afmælisútgáfa Vipp15-tunnunnar er hönnuð af franska listamanninum Vahram Muratyan, sem …
Afmælisútgáfa Vipp15-tunnunnar er hönnuð af franska listamanninum Vahram Muratyan, sem sótti innblástur í götulíf og sögu Kaupmannahafnar. mbl.is/Vipp.com

Ein vin­sæl­asta rusla­tunna heims er nú fá­an­leg í sér­stakri af­mæl­isút­gáfu í til­efni af 80 ára af­mæli tunn­unn­ar.

Í til­efni að stóraf­mæl­inu fengu stjórn­end­ur VIPP hinn franska lista­mann Va­hram Muraty­an til að hanna út­lit á VIPP15-tunn­una sem verður ein­ung­is fá­an­leg í tak­markaðan tíma en Vipp-tunn­urn­ar eru þekkt­ustu eld­húsrusla­tunn­ur sam­tím­ans. 

Hér held­ur Va­hram í ræt­ur danskr­ar menn­ing­ar og sögu með graf­ísku lista­verki sem end­ur­spegl­ar meðal ann­ars lit­ríku hús­in við Nyhavn og Tív­olíið sjálft – fólk á hjól­um og lífið í borg­inni. Va­hram viður­kenn­ir þó að hann hafi ekki al­veg verið með það á hreinu hver upp­runi Vipp-tunn­un­ar væri og hann hafði þetta að segja; „Hönn­un rusla­tunn­unn­ar minn­ir mig á dæmi­gerðan bar sem þú finn­ur í Am­er­íku. Það kom mér því á óvart þegar ég frædd­ist aðeins meira um upp­runa tunn­unn­ar eft­ir að VIPP hafði sam­band við mig út af þessu verk­efni.“

- - -

Fylgstu með Mat­ar­vefn­um á In­sta­gram og Face­book. Enda­laus æv­in­týri, hug­mynd­ir, skemmti­leg­ir leik­ir og allt það heit­asta heita...

- - -

mbl.is/​Vipp.com
Litríku húsin við Nyhavn voru innblástur fyrir listamanninn - ekki …
Lit­ríku hús­in við Nyhavn voru inn­blást­ur fyr­ir lista­mann­inn - ekki að ástæðulausu. mbl.is/​Vipp.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert