Brauðtertan sem fólk er að flippa yfir

mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir

Brauðtert­ur eru mögu­lega það spari­leg­asta sem hægt er að bjóða upp á í góðu boði. Reynsl­an hef­ur sýnt að þegar kem­ur að brauðtert­um erum við Íslend­ing­ar al­veg merki­lega fastheldn­ir á hefðir og hreint ekki hrif­in af því þegar boðið er upp á ein­hverj­ar óvenju­leg­ar nýj­ung­ar.

Hér gef­ur að líta ákaf­lega fal­lega og vel heppnaða brauðtertu úr smiðju Berg­lind­ar Hreiðars­dótt­ur á Gotte­rí & ger­semum. Kak­an er eins sí­gild og hugs­ast get­ur fyr­ir utan út­litið sem er ögn óvenju­legt og kem­ur ein­stak­lega vel út. Það munu vænt­an­lega fáir fjargviðrast út af þessu enda er kak­an sér­deil­is fög­ur á að líta.

mbl.is/​Berg­lind Hreiðars­dótt­ir

Brauðtertan sem fólk er að flippa yfir

Vista Prenta

Laxa- og rækju­brauðterta 

  • 4 x rúllu­tertu­brauð
  • 500 g Hell­mann‘s-maj­ónes (+ ca. 200 g í skreyt­ingu)
  • 1 dós (180 g) sýrður rjómi með graslauk og lauk
  • 1 dós (180 g) sýrður rjómi (36% eða 18%)
  • Salt, pip­ar, karrý og arom­at eft­ir smekk
  • 2 tsk. sítr­ónusafi
  • 2 x vor­lauk­ur
  • ½ rauð paprika
  • 13 harðsoðin egg (+ 3 í skreyt­ingu)
  • 500 g rækj­ur (+ ca 200 g í skreyt­ingu)
  • 200 g reykt­ur lax (+ ca 200 g í skreyt­ingu)

Aðferð:

  1. Hrærið sam­an maj­ónesi og sýrðum rjóma þar til vel blandað og kryddið til með salti, pip­ar, karrý og arom­at. Kreistið sítr­ónusaf­ann sam­an við og blandið vel.
  2. Saxið paprik­una og vor­lauk­inn smátt niður og skerið egg­in niður í litla bita með eggja­skera.
  3. Skolið rækj­urn­ar og þerrið ásamt því að skera lax­inn í smáa bita (saxa hann niður).
  4. Blandið öllu sam­an við maj­ónes­blönd­una.
  5. Skiptið jafnt á milli lag­anna þriggja (brauð efst og neðst).

Sam­setn­ing og skreyt­ing

  1. Byrjið á því að skera út rúllu­tertu­brauðin svo þau passi í hring­laga smellu­form (um 23-25 cm í þver­mál).
  2. Setjið fyrsta brauðið í botn­inn á smellu­form­inu á fal­leg­um kökudisk.
  3. 1/​3 af fyll­ing­unni er smurt yfir og end­ur­tekið þris­var sinn­um (brauð efst).
  4. Að lok­um er tert­an smurð með maj­ónesi að utan og skreytt eft­ir ykk­ar höfði (ég notaði sítr­ónusneiðar, rækj­ur, egg, lax, papriku, ra­dís­ur og kórí­and­erlauf að þessu sinni).
  5. Það má líka al­veg nota rúllu­tertu­brauðin án þess að skera þau og setja bara minna af blöndu á milli í hverju lagi og hafa þannig stærri, fer­kantaða brauðtertu.
mbl.is/​Berg­lind Hreiðars­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert