Heimatilbúinn andlitsmaski sem gerir kraftaverk

Það væri ekki amalegt að ná svona árangri með heimatilbúnum …
Það væri ekki amalegt að ná svona árangri með heimatilbúnum andlitsmaska úr matvælum en tökum eitt skref í einu. mbl.is/Thinkstockphotos

Það jafn­ast fátt við að bera á sig and­lits­maska á kvöld­in og dekra við húðina. Sum­ir vilja meina að hér sé um sann­kallaðan lúx­us að ræða þar sem það get­ur reynst dýrt að kaupa oft slík­an út í búð. En þannig þarf það alls ekki að vera, því það get­ur verið að þú eig­ir hann til í eld­hús­inu heima.

Það er í raun frá­bær hug­mynd að nota mat­væli sem húðvöru og ef þú kík­ir á inni­halds­lýs­ingu á and­lits­maska út í búð er þó mjög ósenni­legt að þar standi t.d. avóka­do eins og í þess­ari upp­skrift en hér er um að ræða al­gjör­an töframaska sem er sneisa­full­ur af alls kon­ar bráðnauðsyn­leg­um efn­um fyr­ir húðina.

Hér er upp­lagt að nota avóka­dó sem er orðinn það þroskað að þú get­ir varla hugsað þér að borða það, og blanda því sam­an við smá­veg­is af hreinni jóg­úrt (eða sýrðum rjóma ef það er við hönd­ina). Smyrjið blönd­unni á and­litið og látið standa í 15-20 mín­út­ur. Þvoið síðan and­litið með volgu vatni.

Maskinn er frá­bær við þreyttri og þurri húð, því full­kom­inn að vetri til. Ef húðin þín er mjög þurr má al­veg bæta smá­veg­is af ólífu­olíu út í blönd­una sem mun mýkja húðina og næra.

- - -

Fylgstu með Mat­ar­vefn­um á In­sta­gram og Face­book. Enda­laus æv­in­týri, hug­mynd­ir, skemmti­leg­ir leik­ir og allt það heit­asta heita...

Hefur þú prófað að bera á þig avocado?
Hef­ur þú prófað að bera á þig avoca­do? mbl.is/​health.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert