Marinerað lambaprime með myntusósu

mbl.is/Hanna

Lambaprime er hinn full­komni helgarmat­ur og hér gef­ur að líta út­færslu af því sem vert er að prófa. Það er mat­ar­blogg­ar­inn Hanna sem á heiður­inn af þess­ari upp­skrift en hún seg­ir að sér þyki gam­an að gera nokkr­ar út­færsl­ur í einu. 

„Það get­ur verið erfitt að grilla kjötið þar sem það er fitu­sprengt og vill stund­um kvikna í því.  Mér finnst það ger­ast frek­ar þegar ég kaupi lambaprime í til­bú­inni mar­in­er­ingu og vil því frek­ar gera mína eig­in mar­in­er­ingu eða bara salta og pipra. Þessi út­gáfa er ein af þeim sem ég hef verið að prófa mig áfram með. Upp­lagt að leggja kjötið í mar­in­er­ingu dag­inn áður og geyma það í kæli yfir nótt. Chut­neysós­an er kannski ekki mjög barn­væn en hún er fersk og skemmti­lega öðru­vísi og pass­ar vel við þessa mar­in­er­ingu. Glimr­andi góður rétt­ur sem gam­an er að bjóða upp á öðru hvoru,“ seg­ir Hanna um upp­skrift­ina. 

Marinerað lambaprime með myntusósu

Vista Prenta

Mar­in­erað lambaprime með myntusósu

Kjöt og mar­in­er­ing

  • 800 g lambaprime
  • U.þ.b. 20 g engi­fer – skorið í grófa bita (ef ég nota líf­rænt engi­fer læt ég hýðið fylgja með)
  • 4 hvít­lauksrif – skor­in í grófa bita
  • ½ grænn chil­ipip­ar – með fræj­um
  • 1 msk. olía
  • ½ tsk. fenn­el fræ
  • ¼ tsk. kanill
  • 1 dl rjómi

Til pensl­un­ar

  • 2 msk. li­mes­afi
  • 1 tsk. chilli­duft
  • 1 tsk. sumac
  • ½ tsk. múskat
  • 1 tsk. gróf­malaður svart­ur pip­ar
  • Salt­flög­ur

Chut­neysósa

  • Tæp­lega 1 dl fersk mynta
  • 1 dós grísk jóg­úrt eða sýrður rjómi
  • 1 msk. hun­ang
  • 1 grænn chil­ipip­ar eða jalapeno (með fræj­um)
  • 2 hvít­lauksrif
  • 2 tsk. cum­in
  • ½ tsk. sumac
  • 2 msk. sítr­ónusafi
  • 1 tsk. nig­ella-fræ (má sleppa) 

Mar­in­er­ing

  1. Engi­fer, hvít­lauk­ur, grænn chil­ipip­ar og olía sett í mat­vinnslu­vél – maukað gróft og sett í skál sem rúm­ar líka kjötið
  2. Af­gangi af hrá­efn­inu (fenn­el fræ, kanill og rjómi) bætt við í skál­ina – blandað sam­an
  3. Kjötið sett í skál­ina og blandað sam­an við mar­in­er­ing­una
  4. Lok/​plast­filma sett yfir og kjötið látið mar­in­er­ast í 3 – 4 klukku­stund­ir eða í kæli yfir nótt (ágætt að snúa kjöt­inu við einu sinni en ekki nauðsyn­legt). Best er að taka kjötið út eitt­hvað áður svo að það nái stofu­hita áður en það er sett á grillið

Chut­neysósa

  1. Allt hrá­efni sett í mat­vinnslu­vél eða öfl­ug­an bland­ara – maukað sam­an

Til pensl­un­ar

  1. Öllu hrá­efni blandað sam­an í skál og penslað á kjötið rétt áður en grillið er hitað
  2. Varðandi steik­ing­una: Það er smekks­atriði hversu mikið kjötið á að vera steikt. Mér finnst gott að hafa það rauðleitt en samt ekki of lítið út af fiturönd­un­um. Steik­ing­ar­tím­inn er einnig mis­mun­andi þar sem kjöt­bitarn­ir geta verið misþykk­ir. Við grill­um kjötið á frek­ar háum hita á báðum hliðum. Svo er hit­inn lækkaður aðeins eða við lát­um kjötið á efri grind­ina í smá stund. Þegar kjötið er tekið af grill­inu er gott að láta það jafna sig aðeins
  3. Einnig er smekks­atriði hvernig kjötið er borið fram. Hægt er að bjóða upp á heila bita eða skera í hæfi­lega stóra bita fyr­ir hvern og einn. Mér finnst best að skera kjötið niður í þunn­ar sneiðar

Meðlæti

T.d. ofn­steikt­ar kart­öfl­ur, hrís­grjón, græn­met­is­gratín, sal­at eða það sem hverj­um og ein­um finnst best.

- - -

Fylgstu með Mat­ar­vefn­um á In­sta­gram og Face­book. Enda­laus æv­in­týri, hug­mynd­ir, skemmti­leg­ir leik­ir og allt það heit­asta heita...

- - -

mbl.is/​Hanna
mbl.is/​Hanna
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert