Munúðarfullur mangó-kjúklingur

Hversu girnilegur kjúklingaréttur?
Hversu girnilegur kjúklingaréttur? mbl.is/Chelseasmessyapron.com

Mar­in­eraður kjúk­ling­ur með stein­selju-lime-mangó-salsa er eitt­hvað sem þú vilt ekki missa af. Ein­föld en skot­held upp­skrift sem kveik­ir í bragðlauk­un­um. Hér er upp­lagt að grilla kjúk­ling­inn en hann er líka jafn góður steikt­ur á pönnu.

Munúðarfullur mangó-kjúklingur

Vista Prenta

Mangókjúlli sem þú vilt alls ekki missa af

  • 4 kjúk­linga­bring­ur
  • ¼ bolli ólífu­olía
  • ¼ bolli lime-safi + 1 tsk. rif­inn börk­ur
  • 1 tsk. hun­ang
  • 2 tsk. hvít­lauk­ur mar­inn
  • 1 tsk. paprikukrydd
  • ½ tsk. chili-krydd
  • 2½ tsk. brodd­kúm­in

Salsa:

  • 1½ bolli mangó, skorið í litla bita
  • 1 msk. jalapeno, skorið
  • 1/​3 bolli rauðlauk­ur, smátt skor­inn
  • 1/​3 bolli stein­selja, smátt skor­in
  • 1 msk. lime-safi
  • 1/​8 tsk. brodd­kúm­in
  • Salt og pip­ar
  • 1 avoca­do, skor­inn í þunn­ar sneiðar

Aðferð:

  1. Skerið kjúk­linga­bring­urn­ar til helm­inga og „berjið“ helm­ing­ana flata. Setjið kjúk­ling­inn í plast­poka sem hægt er að loka.
  2. Takið fram litla skál og pískið sam­an ¼ bolla af ólífu­olíu, 1 tsk. af rifn­um lime-berki, ¼ bolla lime-safa, hun­angi, hvít­lauk, paprikukryddi, chili-kryddi, brodd­kúm­in, salti og pip­ar. Þegar allt er blandað vel sam­an, takið þá 3 msk. af blönd­unni til hliðar og setjið inn í ís­skáp.
  3. Hellið mar­in­er­ing­unni yfir kjúk­ling­inn í pok­an­um og lokið. Setjið í ís­skáp í 30 mín­út­ur en ekki leng­ur en 6 tíma.
  4. Hitið grillið eða pönnu á meðal­hita og eldið kjúk­ling­inn í gegn. Setjið kjúk­ling­inn til hliðar og leggið álp­app­ír yfir. Leyfið kjúk­lingn­um aðeins að hvíla áður en hann er skor­inn í litla bita.
  5. Salsa: Skerið hrá­efn­in niður og blandið öllu vel sam­an í stóra skál með nýkreist­um lime-safa, brodd­kúm­in, salti og pip­ar. Smakkið til.
  6. Berið kjúk­ling­inn fram með hrís­grjón­um, salsa og avoca­do-sneiðum.

- - -

Fylgstu með Mat­ar­vefn­um á In­sta­gram og Face­book. Enda­laus æv­in­týri, hug­mynd­ir, skemmti­leg­ir leik­ir og allt það heit­asta heita...

Við mælum með að berja bringurnar flatar áður en þú …
Við mæl­um með að berja bring­urn­ar flat­ar áður en þú set­ur þær í mar­in­er­ingu. mbl.is/​Chel­seasmessyapron.com
Litríkt salsa sem passar fullkomlega með þessum rétti.
Lit­ríkt salsa sem pass­ar full­kom­lega með þess­um rétti. mbl.is/​Chel­seasmessyapron.com
Gjörið svo vel!
Gjörið svo vel! mbl.is/​Chel­seasmessyapron.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert