Er óhætt að ryksuga hunda?

Hár af dýrum geta verið hvimleitt vandamál á heimilinu.
Hár af dýrum geta verið hvimleitt vandamál á heimilinu. mbl.is/thelabradorsite.com

Er í lagi að ryk­suga hund? Þegar stórt er spurt erum við alltaf til taks með svör­in.

Fólk sem á loðna fer­fætl­inga kann­ast ef­laust við að finna hár víða um heim­ilið og sér­stak­lega eft­ir ketti sem fara upp á öll hús­gögn og una sér jafn­vel uppi á borði í eld­hús­inu. En hvernig er best að losna við öll þessi fínu hár sem fljúga um allt hús? Ryk­suga hund­inn og banna kett­in­um að koma inn - pæl­ing?

Ein leið er að draga fram gamla gúmmí­hanska og fötu með heitu vatni. Bleyttu aðeins í hönsk­un­um eða leyfðu þeim að draga í sig rak­ann. Strjúktu svo yfir sóf­ann eða þar sem hár­in liggja og skolaðu svo hansk­ana í vask­in­um. Ekki skola í vatns­föt­unni því þá end­ar þú uppi með að dreifa enn fleiri hár­um. End­ur­taktu aft­ur og aft­ur þar til þú hef­ur strokið allt burt.
Önnur aðferð er að nota microfi­bre-mottu því ryk­sug­an er ekki alltaf besti kost­ur­inn hvað hár varðar. Eins má finna gaml­an bol og moppa yfir gólfið með hon­um því hár­in draga sig í efnið.

mbl.is/​groom­andstyle.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert