Heilhveitibaka með sætum kartöflum og geitaosti

Ein sú girnilegasta á netinu í dag.
Ein sú girnilegasta á netinu í dag. mbl.is/Spisbedre.dk

Það er eitt­hvað töfr­andi við þessa sam­setn­ingu á böku. Og það er svo gam­an að brjóta upp hvers­dags­leik­ann með böku sem bragðast upp á tíu sem þessi. Hér með sæt­um kart­öfl­um, græn­káli og geita­osti.

Heilhveitibaka með sætum kartöflum og geitaosti

Vista Prenta

Heil­hveiti­baka með sæt­um kart­öfl­um og geita­osti

  • 100 g hveiti
  • 100 g heil­hveiti
  • 1 tsk. salt
  • 100 g kalt smjör
  • 4 msk. ískalt vatn

Sæt­ar kart­öfl­ur:

  • 500 g sæt­ar kart­öfl­ur
  • 1 msk. ólífu­olía
  • Salt

Fyll­ing:

  • 1 rauðlauk­ur
  • Hand­fylli rós­marín
  • 1 msk. ólífu­olía
  • 4 græn­káls­blöð
  • 2 msk. bal­sa­mike­dik
  • Salt og pip­ar
  • 5 egg
  • 1 dl mjólk
  • ½ tsk. salt
  • 110 g geita­ost­ur

Aðferð:

  1. Blandið hveit­un­um og salti í skál. Skerið smjörið í ten­inga og myljið það í deigið. Bætið kalda vatn­inu út í og hrærið í með gaffli (bætið við við vatni ef deigið er ekki nógu mjúkt).
  2. Hnoðið deigið á borði og pakkið því svo inn í plast­filmu og setjið í kæli í 30 mín­út­ur.
  3. Hitið ofn­inn í 175°C. Skolið og skerið kart­öfl­urn­ar í litla ten­inga og dreifið á bök­un­ar­plötu á bök­un­ar­papp­ír.
  4. Veltið þeim upp úr olíu og kryddið með salti. Bakið í 15 mín­út­ur.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert