Beikonvafin himnasending sem gerir allt betra

Hversu girnilegur nart-biti!
Hversu girnilegur nart-biti! mbl.is/Becky Hardin - The Cookie Rookie

Það er ekk­ert að fara stoppa okk­ur í að narta í þess­ar girni­legu bei­kon­vöfðu rækj­ur. Þess­ar bjóða sjálf­um sér í mat­inn og eiga alltaf er­indi við mat­ar­borðið, sama hvert til­efnið er.

Bei­kon­vaf­in himna­send­ing sem ger­ir allt betra

Vista Prenta

Girni­leg­ar bei­kon­vafðar rækj­ur

Prenta
Prenta
  • 450 g rækj­ur (um 20 stk.)
  • 7 sneiðar af bei­koni
  • 4 msk. saltað smjör
  • ¼ bolli púður­syk­ur
  • ½ msk. chipotle (chipotle chili powder)

Aðferð:

  1. Setjið bök­un­ar­papp­ír á bök­un­ar­plötu og hitið ofn­inn í 200°C.
  2. Skerið hverja beikonsneið í 3 hluta og vefjið ein­um hluta utan um hverja rækju. Festið með tann­stöngli og leggið á bök­un­ar­plöt­una.
  3. Blandið sam­an bráðnu smjöri, púður­sykri og chipotle. Smyrjið rækj­urn­ar með blönd­unni og geymið um ⅓ af blönd­unni þar til á eft­ir.
  4. Bakið í 15 mín­út­ur og takið þá rækj­urn­ar út til að smyrja þær aft­ur. Setjið ofn­inn á grillstill­ingu og bakið rækj­urn­ar áfram í 1-2 mín­út­ur.
  5. Berið fram með því sem hug­ur­inn girn­ist.
mbl.is/​Becky Har­din - The Cookie Rookie
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert