Töfraráð fyrir teflon-pönnur!

Hvernig er best að halda pönnunni í góðu formi?
Hvernig er best að halda pönnunni í góðu formi? mbl.is/tastingtable.com

Pott­ar og pönn­ur með góðri teflon-húð eru satt að segja mik­il bless­un við elda­mennsk­una. Við not­um minna af olíu og fit­an lek­ur hrein­lega af við þrif. Að fletta pönnu­kök­um og omm­elett­um verður leik­ur einn á góðri pönnu. En hvernig er best að viðhalda pönn­unni? Við þekkj­um það vel þegar slík­ar pönn­ur eiga það til að tapa gæðunum – svo hvað er til ráða?

Góð ráð til að halda pönn­unni í topp­st­andi

  • Þvoið pönn­una um leið og hún kem­ur úr kass­an­um og þurrkið hana vel.
  • Hellið ólífu­olíu á pönn­una þannig að olí­an þeki pönn­una með þunnu lagi að inn­an.
  • Hitið pönn­una á meðal­hita í tvær mín­út­ur.
  • Leyfið pönn­unni og ol­í­unni að kólna og strjúkið þá pönn­una að inn­an með mjúk­um klút.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert