Nýjasta æðið í ísgerð

Halló „gorge“ ís!
Halló „gorge“ ís! mbl.is/MATCHA N´MORE

Kæru Ís-lend­ing­ar, hver ætl­ar að vera fyrst­ur hér á landi til að bjóða upp á gyllt­an ís? Því við erum kol­fall­in fyr­ir út­lit­inu á þess­um fag­ur­litaða og gyllta ís, þó við vit­um ekk­ert hvernig hann smakk­ist.

MATCHA N' MORE er lítið kaffi­hús í stór­borg­inni New York sem býður upp á drykki, ljúfa deserta og ómót­stæðileg­ar freist­ing­ar. Und­ir­staðan ligg­ur í „matcha“ sem er fín­gert duft unnið úr græn­um te-lauf­um og er flutt beint á kaffi­húsið frá Uji í Jap­an, þar sem matcha kem­ur upp­haf­lega. Hér er allt ferskt og holl­ust­an í fyr­ir­rúmi á kaffi­hús­inu.

Hjá MATCHA N' MORE er meðal ann­ars boðið upp á lit­ríka ísa með gyll­ingu, sem ger­ir ís­inn eins glæst­an og hugs­ast get­ur. Við get­um ekki beðið eft­ir að sjá hvaða ísbúð hér á landi eigi eft­ir að byrja selja glamúr-ís sem þenn­an.

mbl.is/​MATCHA N´MORE
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert