Þrjár útfærslur af ofnbökuðum lax með kaldri sósu

Ofnbakaður lax slær alltaf í gegn - hér borinn fram …
Ofnbakaður lax slær alltaf í gegn - hér borinn fram með kaldri sósu. mbl.is/santamaria.com

Það má út­færa lax á marga vegu, en við rák­umst á þessa upp­skrift hjá Santa Maria sem kynn­ir lax í þrem­ur út­færsl­um. Eina sem til þarf er þeirra bragðgóða paste sem fæst með basilik­um, chili eða hvít­lauk, blanda því sam­an við ólífu­olíu og smyrja á laxa­bit­ana.

Þrjár útfærslur af ofnbökuðum lax með kaldri sósu

Vista Prenta

Þrjár út­færsl­ur af ofn­bökuðum lax með kaldri sósu (fyr­ir 4)

  • 1 msk. rap­sol­ía
  • 4 laxa­stykki
  • 1 tsk. salt

Köld sósa:

  • 3 dl sýrður rjómi
  • 1 stórt hvít­lauksrif
  • 1 tsk. hun­ang
  • 1 tsk. dijon sinn­ep
  • Salt og pip­ar

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn í 200° C.
  2. Blandið ólífu­olíu með því kryddi (paste) sem óskað er.
  3. Leggið lax­inn í smurt eld­fast mót og hellið olíu­blönd­unni yfir. Saltið og piprið. Bakið í ofni í 15 mín­út­ur.
  4. Á meðan lax­inn er í ofn­in­um er upp­lagt að gera sós­una. Blandið öll­um hrá­efn­un­um sam­an í skál.
mbl.is
Fleira áhugavert