Hakk og spaghetti - tekið upp á næsta plan

mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson

Hver elsk­ar ekki hakk og spaghetti? Hér erum við með upp­skrift að þess­um elskaða rétt sem búið er að taka upp á næsta stig.

Það er eng­inn ann­ar en Lækn­ir­inn í eld­hús­inu sem á heiður­inn að þess­ari snilld og eins og alþjóð veit þá klikk­ar hann ekki.

Hakk og spaghetti - tekið upp á næsta plan

Vista Prenta

Hakk og Spaghetti 2.0 - ein­fald­ur og ljúf­feng­ur hvers­dags­mat­ur

Fyr­ir fimm

  • 500 g spaghetti
  • 500 nauta­hakk
  • ½ hvít­ur lauk­ur (átti af­gangs frá því um helg­ina)
  • ½ rauður lauk­ur (átti af­gangs frá því um helg­ina)
  • 1 pakki af parma­skinku
  • 200 ml nauta­soð
  • 150 ml rjómi
  • 75 g smjör
  • salt og pip­ar (ekki svo mikið af salti þar sem parma­skink­an er held­ur sölt)

Aðferð:

  1. All­ar góðar upp­skrift­ir byrja á því að bræða smjör á pönnu. Það er ekk­ert að því að bæta smá jóm­frúarol­íu sam­an við. Það drep­ur eng­an.
  2. Rífið parma­skink­una í bita.
  3. Skerið lauk­inn smátt.
  4. Steikið öll her­leg­heit­in á stórri pönnu.
  5. Steikið nauta­hakkið vand­lega að utan, saltið og piprið. Bætið nauta­soðinu sam­an við og sjóðið niður um helm­ing. Því næst rjóm­an­um og sjóðið aft­ur niður.
  6. Sé ein­hver af­gang­ur af rauðvíni helgar­inn­ar er kjörið að það fái að mæta ör­lög­um sín­um í þess­ari kjötsósu. Ef þið eruð að nota rauðvín gætið þess að að setja það bara á und­an nauta­soðinu og látið það sjóða ræki­lega niður. Eins mætti vand­ræðalaust bragðbæta þetta með tóm­at­mauki en ég lét það vera þar sem mig langaði til að gera þessa kjötsósu al­veg án tóm­ata.
  7. Sjóðið svo sós­una niður þannig að hún verði þétt og fal­leg.
  8. Á meðan sós­an kraum­ar er spaghetti soðið í vel söltuðu vatni. Bætið nokk­um mat­skeiðum af pasta­vatn­inu sam­an við kjötsós­una.
  9. Ég notaði bragðbætta jóm­frúarol­íu til að krydda það sem ég hafði sett á disk­inn minn. Hún er það bragðmik­il að ég var ekk­ert að bæta henni út í alla sós­una.
  10. Verði ykk­ur ein­stak­lega að góðu!
  11. Endi­lega kíkið á þátt­inn minn á Sjón­varpi Sím­ans á fimmtu­dög­um klukk­an 20:10 eða í Sjón­varpi Sím­ans Premium þar sem öll serí­an af Lambið og miðin er fá­an­leg.
mbl.is/​Ragn­ar Freyr Ingvars­son
mbl.is/​Ragn­ar Freyr Ingvars­son
mbl.is/​Ragn­ar Freyr Ingvars­son
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert