Einstaklega bragðgott grænmetislasagne

Grænmetislasagne af bestu gerð.
Grænmetislasagne af bestu gerð. mbl.is/santamariaworld.com

Lasagne er bæði mett­andi og auðvelt í fram­kvæmd – því samasem merki um hinn full­komna kvöld­mat. Hér má ým­ist leika sér með að setja chili-flög­ur eða fenn­el fræ og sítr­ónu sem setja sinn svip á rétt­inn.

Einstaklega bragðgott grænmetislasagne

Vista Prenta

Ein­stak­lega bragðgott græn­met­islasagne

  • 1 lauk­ur
  • 2 gul­ræt­ur
  • 2 sell­e­rí­stöngl­ar
  • 2 msk. hví­lauks paste
  • 2 msk. rap­sol­ía
  • 2 dós­ir hakkaðir tóm­at­ar
  • ½ tsk. salt
  • Pip­ar
  • 200 g ferskt spínat
  • 200 g fersk­ar lasagne plöt­ur
  • Rif­inn ost­ur

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn á 225°C.
  2. Saxið lauk smátt, skerið gul­ræt­ur og sell­e­rí í skíf­ur og blandið sam­an við hvít­lauks paste og því næst ol­í­una. Bætið við hökkuðum tómöt­um, salti og pip­ar ásamt því kryddi sem þú kýst (chili-flög­ur, fenn­el fræ og sítr­ónu). Látið sjóða í sirka 5 mín­út­ur og hellið þá blönd­unni í skál og látið standa í smá stund.
  3. Veltið aðeins spínatinu upp úr olíu og leggið tóm­at­blöndu, spínat og lasagne­plöt­ur til skipt­is í eld­fast mót.
  4. Stráið vel af rifn­um osti yfir og setjið inn í ofn í 25 mín­út­ur eða þar til lasagne­plöt­urn­ar eru orðnar mjúk­ar og ost­ur­inn hef­ur tekið lit.
  5. Berið fram með hvít­lauks­brauði eða góðu sal­ati.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert