Pítstusteinar sagðir betri en eldofnar

Und­ir­rituð er ein­læg­ur áhugamaður um pítsu­gerð og dreym­ir heitt um að eign­ast al­vöru eldofn út í garði. Því varð ég afar undr­andi þegar fór að bera á fregn­um af því að pítsur sem grillaðar eru á pítsu­steini séu jafn­vel betri en frænk­ur þeirra úr eldofni. Ef satt reyn­ist boðar þetta bylt­ingu fyr­ir allt áhuga­fólk um pítsu­gerð því þótt fæst­ir eigi eldofn þá leyn­ist gott gasgrill í garðinum hjá flest­um.

Þessi upp­skrift hér kem­ur frá henni Berg­lindi Hreiðars á Gotteri.is en eins og alþjóð veit þá kann hún sitt­hvað fyr­ir sér í eld­hús­fræðum.

Pítstusteinar sagðir betri en eldofnar

Vista Prenta

Grillaðar pizz­ur 

  • 900 g hveiti
  • 1 ½ pk þurr­ger
  • 1 msk salt
  • 520 ml volgt vatn
  • 4 msk ólífu­olía

Aðferð:

  1. Blandið öll­um hrá­efn­um sam­an í hræri­vél­ar­skál­ina og hnoðið með krókn­um.
  2. Bætið smá vatni eða hveiti við eft­ir því hvort deigið er of þurrt eða blautt í sér. Best finnst mér að reyna að ná því eins blautu og hægt er án þess að það klístrist við allt.
  3. Hjúpið stóra skál með matarol­íu og komið deig­kúl­unni fyr­ir þar í, snúið einu sinni svo allt deigið hjúp­ist olíu og setjið plast­filmu á skál­ina og leyfið að hef­ast í klukku­stund.
  4. Skiptið niður í 3-4 stór­ar (30 x 44 cm steinn­inn) eða 5-6 hring­laga (36 cm hring­laga steinn­inn).

Ég gerði þrjár mis­mun­andi pizz­ur og hér fyr­ir ofan er pizza með mozzar­ella, tómöt­um og basiliku. Ég grillaði hana með pizzasósu, rifn­um osti, mozzar­ella­kúl­um og tómöt­um og skar svo ferska basiliku á þegar hún kom af grill­inu og dreifði yfir.

Það er síðan geggjað að setja góðar ólífu­olí­ur á grillaðar pizz­ur þegar þær eru til­bún­ar!

Svo gerði ég marga­ritu (með pizzasósu og osti) og setti síðan á hana kál/​kletta­sal­at, hrá­skinku og rif­inn par­mesanost. Toppað með góðri ólífu­olíu!

Svo þessi típíska fyr­ir stelp­urn­ar, pizzasósa, ost­ur, an­an­as og pepp­eroni. Or­egano stráð yfir í lok­in og hvít­lauk­sol­íu.

Pítsan lítur afskaplega sannfærandi út á grillinu.
Píts­an lít­ur af­skap­lega sann­fær­andi út á grill­inu. mbl.is/​Berg­lind Hreiðars­dótt­ir
mbl.is/​Berg­lind Hreiðars­dótt­ir
mbl.is/​Berg­lind Hreiðars­dótt­ir
mbl.is/​Berg­lind Hreiðars­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert