Ídýfan sem passar svo vel í hitanum

Ídýfa með grísku ívafi er fullkomin í saumaklúbbinn.
Ídýfa með grísku ívafi er fullkomin í saumaklúbbinn. mbl.is/Damndelicious.net

Rjóma­kennd ídýfa sem all­ir munu garga yfir er þeir smakka! Tek­ur inn­an við kort­er að reiða fram og geym­ist í allt að tvo daga inn í ís­skáp – svo þessa má vel út­færa deg­in­um áður til að spara tíma.

Ídýfan sem passar svo vel í hitanum

Vista Prenta

Gríska sauma­klúbbsí­dýf­an

  • Fetakubb­ur
  • Sýrður rjómi
  • 1 bolli grísk jóg­úrt
  • 1 msk. nýkreist­ur sítr­ónusafi
  • 2 tsk. rif­inn sítr­ónu­börk­ur
  • 1 hvít­lauksrif, marið
  • ¼ bolli pepp­eronc­ini pepp­er
  • 2 msk. ferskt dill, saxað
  • 2 msk. fersk stein­selja, söxuð
  • 1 smá-gúrka, skor­in í sneiðar
  • 1 róma tóm­at­ur, skor­inn í litla bita

Aðferð:

  1. Notið spaðann (paddle) á hræri­vél­inni og blandið sam­an fetakubbi, sýrðum rjóma, grískri jóg­úrt, sítr­ónusafa, sítr­ónu­berki og hvít­lauk á medi­um hraða, þar til bland­an verður létt í sér – sirka 2 mín­út­ur.
  2. Bætið við pepp­eronc­ini, dilli og stein­selju – allt smátt saxað. Breyðið yfir og setjið í kæli þar til ídýf­an er bor­in fram. Geym­ist í allt að 2 daga í ís­skáp.
  3. Berið fram og skreytið með gúrku og tóm­at ef vill.
mbl.is/​Damndelicious.net
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert