Dúnmjúkt hunangssmjör

Hunangssmjör sem þú munt elska hér eftir.
Hunangssmjör sem þú munt elska hér eftir. mbl.is/Thecookierookie.com

Við höf­um ef­laust borðað ótelj­andi brauðsneiðar með smjöri um æv­ina – en smjör er ekki bara smjör. Þið sem sæk­ist eft­ir til­breyt­ingu í líf­inu og eruð opin fyr­ir því að smakka nýtt smjör: þetta hun­angs­smjör er að fara að gera góða hluti.

Smjörið geym­ist í allt að mánuð í ís­skáp eða sex mánuði í frysti. Afar ein­falda og fljót­lega upp­skrift að mjúku ósöltuðu hun­angs­smjöri má finna hér fyr­ir neðan.

Dúnmjúkt hunangssmjör

Vista Prenta

Dún­mjúkt hun­angs­smjör

  • 460 g ósaltað smjör við stofu­hita
  • ½ bolli hun­ang
  • ½ bolli 100% hlyns­íróp
  • ¼ tsk. kos­her-salt
  • ½ tsk. kanill (má sleppa)

Aðferð:

  1. Skerið smjörið í litla bita, setjið í skál og þeytið á lágri still­ingu.
  2. Stillið yfir á meðal­hraða á þeyt­ar­an­um og hellið hun­angi og sírópi ró­lega út í.
  3. Bætið við salti og aukið hraðann á þeyt­ar­an­um. Þeytið þar til smjörið er létt og loft­kennt í u.þ.b. 5 mín­út­ur.
  4. Geymið í ís­skáp í loft­tæmdu boxi í allt að einn mánuð.
mbl.is/​Thecookierookie.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert